Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

31. fundur
10. janúar 2018 kl. 15:00 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Birna Steinarsdóttir formaður
Svandís Perla Snæbjörnsdóttir aðalmaður
Arndís Ósk Magnúsdóttir aðalmaður
Ingunn Ósk Grétarsdóttir varamaður
Íris Mist Björnsdóttir varaformaður
Anna María Harðardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Umsögn um frumvarp til laga: kosningaraldur mál 40
Málsnúmer 201712060
Til umsagnar 40. mál frá nefndarsviði Alþingis. Umsögn um frumvarp til laga: kosningaraldur
Ungmennaráð ítrekar fyrri bókun sína frá fundi ungmennaráðs 10. maí 2017 en þar segir:"Allir nefndarmenn lýsa ánægju sinni á frumvarpi þessu og vonast til að þetta verði að veruleika. Hálft verk þá unnið er með því að fá kosningaaldurinn lækkaðan í 16 ár í sveitarstjórnarkosningum með von um að ekki verði langt í það að aldurinn verði einnig lækkaður fyrir Alþingiskosningar". Ungmennaráð vonast eftir skjótri afgreiðslu því brátt þarf að huga að skuggakosningum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar og miklu skiptir hvort þær verða eingöngu fyrir 13 - 16 ára ungmenni eða fyrir 13 - 18 ára ungmenni.
Rödd ungs fólks skiptir máli því við erum einnig hluti af þessu samfélagi og höfum rétt á því að taka þátt.
2.
Ungmennaþing 2017
Málsnúmer 201705032
Niðurstöður í greinargerð frá ungmennaþingi ræddar. Hverjar gætu verið lausnirnar?
Það er ekki ósk ungmennaráðs að auka vinnu kennara þó kallað sé eftir aukinni og fjölbreyttari fræðslu. Hægt væri að athuga hvort eldri jafningjafræðarar gætu kennt þeim sem eru yngri að taka við keflinu sem jafningjafræðarar á Hornafirði. Ungt fólk er líklegra til að tjá sig og læra af jafnöldrum sínum heldur en "gömlum köllum með glærukynningu í fyrirlestrarsal". Til að fá aukna og fjölbreyttari fræðslu er einnig hægt að kalla eftir utanaðkomandi fræðurum.
3.
Ungmennahús
Málsnúmer 201701046
Opnun ungmennahúss í lok janúar í húsnæði Þrykkjunnar. Umgengnisreglur - ábyrgð.
Adisa forstöðumaður Þrykkjunnar mun mæta til að byrja með og opna húsið en verður einnig með viðveru sem ungmenni. Ungmennaráð og nemendafélag FAS ætla að hittast á vinnufundi og ræða opnunar-viðburð.
4.
Áheyrnarfulltrúar nefnda
Málsnúmer 201801027
Áheyrnarfulltrúar fastanefnda.
Sigrún Birna kynnti fyrir ungmennaráði stöðu áheyrnarfulltrúa. Starfsmanni falið að finna út í hvaða nefndir vantar áheyrnarfulltrúa sem og varamenn.
5.
Ungmennaþing 2017
Málsnúmer 201705032
Kynning á Silju Rut Jónsdóttur, sálfræðingi.
Silja Rut Jónsdóttir sálfræðingur kemur og heldur kynningu á sér og sínum störfum fyrir nemendur FAS og kennara, 22. janúar. Þetta er liður í að uppfylla óskir ungmenna af nýafstöðnu ungmennaþingi. Ungmennaráð fagnar komu sálfræðings í skólann og vonar að gott aðgengi verði að hennar þjónustu fyrir ungt fólk.