Ungmennaráð Hornafjarðar
67. fundur
8. desember 2021
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Hekla Natalía Sigurðardóttir
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Maríus Máni Jónsson
Brynja Lind Óskarsdóttir
Tómas Nói Hauksson
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Valdeflandi námskeið fyrir ungmennráð
Á fund ungmennráðs komu þær Hugrún Harpa Reynisdóttir og Kristín Vala Þrastardóttir frá Nýheimum. Þær komu til að kynna fyrir ungmennaráði fjölbreytt verkefni m.a. í valdeflingu sem þær hafa hug á að bjóða fulltrúum ungmennaráðs að taka þátt í á nýju ári. Ungmennaráð hlakkar til að heyra aftur í þeim stöllum á nýju ári til að festa niður hentugar dagsetningar á verkefninu.
2.
Önnur mál ungmennaráðs
Fulltrúar ungmennaráðs áttu mjög gott samtal hvers vegna þau væru í ungmennaráði og hvers mætti vænta af þeim í krafti ungmennaráðs. Margar flottar hugmyndir komu fram sem ungmennaráð mun vinna áfram með og koma þeim á framfæri á réttum vettvangi.