Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

68. fundur
12. janúar 2022 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Agnar Jökull Imsland Arason
Hekla Natalía Sigurðardóttir
Maríus Máni Jónsson
Brynja Lind Óskarsdóttir
Tómas Nói Hauksson
Petra Rós Jóhannsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Skuggakosningar 2022
Málsnúmer 202201035
Skuggakosningar ungmennaráðs eru fyrihugaðar í vor samhliða sveitarstjórnarkosningunum. Það styttist í þetta og því þarf að undirbúa skuggakosningarnar og alla umgjörð vel ásamt því að þurfa að vera einnig með plan B og jafnvel C vegna Covid.
Ungmennaráð ætlar að halda skuggaskosningar samhliða sveitarstjórnarkosningunum í vor. Fyrirhugað er að halda kosningarnar um mánaðarmótin apríl/maí. Þeir sem mega kjósa í skuggaskosningunum eru þeir/þau sem eru fæddir/fædd á árunum 2005 - 2009. Undirbúningur fyrir verkefni sem þetta er mikill og mun ungmennaráð upplýsa/auglýsa næstu skref fljótlega. Spennandi verkefni framundan.
2.
Kynning á niðurstöðum frá Barnaþingi
Málsnúmer 202201036
Barnaþing á vegum Barnvæns sveitarfélags fór fram í nóvember s.l. Nú þarf að kynna niðurstöður þingsins en verkefnastjóri verkefnisins ,,Barnvænt sveitarfélag" hefur unnið úr gögnum þingsins. Leitast var eftir því að fá ungmenni til að kynna niðurstöðurnar og hafa fjórir fulltrúar ungmennaráðs boðið sig fram í það.
3.
Ungmennaráð og Covid
Málsnúmer 202201037
Ungmennaráð líkt og allir jarðarbúar hafa þurft að loka á ýmislegt vegna covid. Hvað hafa fulltrúar ungmennaráðs að segja um ástandið- framtíðina - næstu mánuði? Umræður um covid með þeirra augum og líðan..
Góðar umræður um Covid áttu sér stað hjá fulltrúum ungmennaráðs. Þau voru t.d. sammála um það að þeim fannst að sóttvarnarreglurnar væru meira gerðar fyrir fullorðna heldur en unga fólkið. Þeim fannst ósköp eðlilegt að börn og ungmenni myndu einnig bera grímur í Nettó. Þau voru öll frekar bjartsýn á næstu mánuði og vonast til að við öll getum farið að lifa lífinu aftur eins og áður :)