Ungmennaráð Hornafjarðar
69. fundur
9. febrúar 2022
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Agnar Jökull Imsland Arason
Hekla Natalía Sigurðardóttir
Maríus Máni Jónsson
Brynja Lind Óskarsdóttir
Tómas Nói Hauksson
Petra Rós Jóhannsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Skuggakosningar 2022
Undirbúningur og hugmyndir fyrir Skuggakosningarnar sem haldnar verða í lok apríl
Ungmennaráð hefur ákveðið að halda vinnufund með tilheyrandi hugarstormi til að setja saman áætlun fyrir Skuggakosningarnar. Búast má við öðrum fundi ungmennaráðs seinnipartinn í febrúar til að klára áætlunina.
2.
Hinsegin vika á Höfn
Fyrirhugað er að halda hinsegin viku á Höfn í anda þeirrar viku sem haldin var í Árborg á dögunum. Hugmyndin var lögð undir Ungmennaráð til skrafs og ráðagerða.
Ungmennaráð tók vel í hinsegin viku sem fyrirhuguð er í sveitarélaginu í mars. Ungmennin voru spurð útí viðburði sem hægt væri að framkvæma í vikunni og ekki stóð á svörunum frá þeim:
Fá Pál Óskar með tónleika - bíósýningar Brokeback Mountain - ef ekki er hægt að mála regnbogastíginn þá væri flott að kaupa hvíta boli og skreyta þá með málningu í regnbogalitunum - halda gleðigöngu/regnbogagöngu þar sem fólk klæðist regnbogabolunum sínum - virkja í okkur listræna genið og búa til marglit listaverk í snjónum með náttúrulegum umhverfisvænum litum t.d. matarlit (því þá má borða) - einhverjir að baka regnbokakökur og selja - glens og gaman fyrir alla án fordóma.

3.
Skýrsla um börn og netmiðla 2.hluti
Lögð fram skýrsla um börn og netmiðla. Kynferðisleg komment & nektarmyndir. Umræður
Skýrsla tvö af fjórum um Börn og netmiðla var lögð fram til kynningar hjá ungmennaráði. Þessi skýrsla fjallar um kynferðisleg komment og nektarmyndir á samfélagsmiðlum. Ágætis umræður áttu sér stað eftir kynningu á skýrslunni en þar fór hæst hvað börn væru ung þegar þau væru komin á samfélagsmiðla. Ekki er óeðlilegt að 10 ára börn séu komin með myndsíma í hendur og eiga mörg hver aðganga á samfélagsmiðla. Ungmennaráði finnst að ekki þurfi einungis að fræða börn/unglinga um hættuna á samfélagsmiðlunum heldur foreldrana líka - fá þau til að tala við börn sín og reyna að seinka aðgangi þeirra að samfélagsmiðlum.
4.
Önnur mál ungmennaráðs
1) Minna á fundinn með Kristínu Völu og Hugrúnu þann 23.feb.n.k. Hve margir eru á leiklistaræfingu og hve margir sjá sér fært um að mæta?
1) Starfsmanni falið að fá upplýsingar um æfingatíma þeirra í leiklistinni.