Ungmennaráð Hornafjarðar
70. fundur
4. mars 2022
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Agnar Jökull Imsland Arason
Hekla Natalía Sigurðardóttir
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Maríus Máni Jónsson
Brynja Lind Óskarsdóttir
Tómas Nói Hauksson
Petra Rós Jóhannsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Deiliskipulag af Miðsvæði Hafnar lagt fram til kynningar. Brynja Dögg Ingólfsdóttir skipulagsstjóri kom og kynnti fyrir ungmennaráði fyrirhugað deiliskipulag á miðsvæði Hafnar. Ungmennin voru hvött til að senda inn athugasemdir eða spurningar á skipulagsstjóra varðandi deiliskipulagið ef einhverjar væru. Þökkum Brynju fyrir áhugaverða kynningu.
2.
Hinsegin vika á Höfn
Áætlað er að halda hinsegin viku í sveitarfélaginu í lok mars - byrjun apríl. Beðið er eftir svörum frá Samtökunum 78 sem munu halda hér fræðslu á Höfn fyrir alla aldurshópa og að sjálfsögðu
fyrir almenning líka. Fólk er hvatt til að fylgjast með á samfélagsmiðlum sveitarfélagsins og á Hornafjordur.is því allar upplýsingar munu birtast á þessum miðlum er nær dregur.
fyrir almenning líka. Fólk er hvatt til að fylgjast með á samfélagsmiðlum sveitarfélagsins og á Hornafjordur.is því allar upplýsingar munu birtast á þessum miðlum er nær dregur.
3.
Skuggakosningar 2022
Það styttist hratt í sveitarstjórnarkosningar, þær eru hreinlega handan við hornið. Ungmennaráð mun halda Skuggakosningar í aðdraganda sveitarsjórnarkosninganna. Ungt fólk í 7. bekk Heppuskóla þ.e. 13 ára til og með 17 ára ungmennum fæddum 2005 mun standa til boða að taka þátt í þessum kosningum. Mikið þarf að spá og spekúlera og vanda til verks í verkefni sem þessu. Ungmennaráð mun standa fyrir kynningum á þeim stjórnmálaflokkum sem munu bjóða sig fram á Höfn. Við hvetjum öll ungmenni til að mæta á þessar kynningar þegar þær verða boðaðar. Fylgist því með samfélagsmiðlum, Instagrami ungmennaráðs og að sjálfsögðu verður heimasíða Unghofn endurnýjuð lífdaga. https://unghofn.wixsite.com/unghofn
4.
Humarhátíð 2022
Ungmennaráð mun að einhverjum hætti koma að fjölskyldusprelli á Humarhátíð 2022 í það minnsta á laugardeginum. Við erum farin að hlakka til :) ... en hvað með þig?