Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

85. fundur
13. nóvember 2023 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Stefán Birgir Bjarnason
Alexandra Guðrúnardóttir
Sigursteinn Ingvar Traustason
Amylee Vitoria da Silva Trindade
Smári Óliver Guðjónsson
Dagmar Lilja Óskarsdóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna - Barnvænt sveitarfélag
Málsnúmer 202010120
Drög að aðgerðaráætlun lögð fyrir ungmennaráð.
Aðgerðaráætlun lögð fram til kynningar.
Ungmennaráð óskaði eftir því að fá eintak af áætluninni og mun starfsmaður senda þeim hana.
Annars þakka þau Eyrún kærlega fyrir komuna og starfshópnum fyrir vel unninn störf.
2.
Heilsueflandi samfélag 2021
Málsnúmer 202111023
Hornafjörður er þátttakandi í verkefninu heilsueflandi sveitarfélag á vegum Landlæknisembættisins.Gátlistar heilsueflandi sveitarfélags verða lagðir fram til kynningar ásamt umræðum um þær 7 stoðir sem gátlistarnir marka. Hvað finnst fulltrúum í ungmennaráði mikilvægast að leggja áherslu á í heilsueflandi samfélagi?
Farið var yfir verkefnið heilsueflandi samfélags og út á hvað það var gengur. Gátlistarnir voru kynntir og stutt umræða um hvern flokk fyrir sig og hverjar áherslur ungmennaráðs eru. Lýðheilsuráð tekur við ábendingum ungmennaráðs.
3.
Tilnefning í nefndir og ráð - ungmennaráð
Málsnúmer 202209040
Kominn er nýr fulltrúi ungmennaráðs úr atvinnulífinu. Dagmar Lilja ÓskarsdóttirUngmennaráð Hornafjarðar skipar áheyrnarfulltrúa í fastanefndir sveitarfélagsins.Áheyrnarfulltrúi í atvinnu- og menningarmálanefnd er Amylee Trindade. Í umhverfis- og skipulagsnefnd er Stefán Birgir Bjarnarson, varamaður þar er Sigursteinn Ingvar Traustason en hann er einnig áheyrnarfulltrúi í Hafnarstjórn.Ungmennaráð á eftir að skipa fulltrúa í velferðarnefnd og lýðheilsuráð
Farið yfir nefndir og störf. Dagmar Lilja Óskarsdóttir verður áheyrnarfulltrúi í velferðarnefnd.
4.
Ungmennaþing 2023
Málsnúmer 202304024
Ungmennaráð hefur verið að vinna að myndböndum til að kynna niðurstöður ungmennaþings.
Kynningarmyndböndin af niðurstöðuna ungmennaráðs eru komin vel á veg, en þarfnast þó enn talsverðar vinnu. Starfsmaður fær því leyfi til að afhenda nefndum og ráðum drögin af handritinu til upplýsingar.
5.
Ungmennaráð Barnvænna sveitarfélaga í Hörpu
Málsnúmer 202311010
Fulltrúar Ungmennaráð Hornafjarðar voru á ráðstefnu í Hörpu þann 2. nóvember síðastliðinn. Ráðstefnan var haldin á vegum ungmennaráðs Unicefs í samstarfi við unga umhverfissinna. Umræðuefnið var umhverfismál.
Stefán Birgir fór yfir hvert markmið fundarins var og hvaða kynningu hann fór með en hún var um hvað Hornafjörður væri að gera gott í umhverfismálum.
6.
Kynningar á fastanefndum
Málsnúmer 202302002
Sigursteinn Ingvar fer yfir hvað er að gerast hjá HafnarstjórnStefán Birgir fer yfir helstu mál hjá umhverfis- og skipulagsnefnd. Amylee fer yfir hvað er að gerast hjá atvinnu- og menningarmálanefndJón Dagur fer yfir hvað er að gerast hjá fræðslu- og frístundanefnd. Emil fer yfir önnur mál.
Farið var yfir fundargerðir fastanefnda og rætt um þær.