Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

86. fundur
4. desember 2023 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Sigursteinn Ingvar Traustason
Jón Dagur Ísaksen Hafsteinsson
Smári Óliver Guðjónsson
Dagmar Lilja Óskarsdóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Málsnúmer 202010120
Aðgerðarhópur barnvæns sveitarfélags hefur unnið að breytingum á aðgerðaráætlun og því er aðgerðaráætlun lögð aftur fram til kynningar.
Ungmennaráð þakkar fyrir góða kynningu á metnaðarfullri aðgerðaráætlun
2.
Ungmennaráð Barnvænna sveitarfélaga í Hörpu
Málsnúmer 202311010
2. nóvember fóru fulltrúar úr ungmennaráði Hornafjarðar á ráðstefnu í Hörpu þar sem mættir voru fulltrúar 23. annarra ungmennaráða víðsvegar af landinu. Þar var unnið að yfirlýsingu sem ungmennaráð UNICEFs gaf út í tilefni afmælis dag Barnasáttmálans sem er 20. nóvember ár hvert.Yfirlýsinginn lögð fram til kynningar og umræðu.
Farið var yfir yfirlýsinguna frá ungmennaráði Unicef og er þeim þakkað sem unnu að henni.
Umræður sköpuðust í kjölfarið um mikilvægi þess að minna samfélagið á Barnasáttmálann og þá sérstaklega grein númer 12. "Öll börn eiga rétt á því að tjá sig um þau málefni sem þau varðar og fullorðnum er skylt að hlusta á þau og taka mark á þeim."
https://www.unicef.is/ungmennarad-23-sveitarfelaga-sameinast-i-akalli-um-adgerdir-i-loftslagsmalum?fbclid=IwAR2GcBVgFgPDldp9PIDl6kXoQSXk6vYnN_E9BYQLI0jLR_D6LrjhKIQwAsg

3.
Sameiginlegur fundur bæjaráðs og ungmennaráðs.
Málsnúmer 202211033
Samkvæmt erindisbréf ber ungmennaráði að funda með bæjaráði einu sinni á ári. Lagt er til að sá fundur verði 8. janúar 2024.
Starfsmaður mun boða bæjarstjóra og bæjaráð inn á fund ungmennaráðs.
4.
Ungt fólk og sjálfbært sveitarfélag
Málsnúmer 202311177
Hvað þarf til þess að sveitarfélagið verði sjálfbærara og að það unga fólk sem fer héðan til að sækjast sér menntun eða vinnu hafi tækifæri til að koma til baka með aukna þekkingu og reynslu. Að unga fólkið sjái tækifæri í og finnist eftirsóknarvert að Hornafjörður verði framtíðarheimilið þeirra.
Umræður sköpuðust út frá spurningalista sem starfsmaður hafði unnið. Hann mun vinna úr niðurstöðum listans og koma honum áfram á þá sem málið varðar.
5.
Kynningar á fastanefndum
Málsnúmer 202302002
Farið yfir helstu umræður í fastanefndum.
Áheyrnarfulltrúar fóru yfir helstu umræðuefni frá umhverfis og skipulagsnefnd, fræðslu og frístundarnefnd og hafnarstjórn.
6.
Þrykkjuball
Málsnúmer 202312021
Nemendafélag FAS hefur bókað Stuðlabandið hingað til Hornafjarðar 18.desember.Það hefur boðið Þrykkjunni að nýta ferðina og vera með auka ball. Nemendafélagið óskar einnig eftir aðstoð frá ungmennaráði.
Ungmennaráð fagnar þessu framtaki nemendafélags FAS og mun að sjálfsögðu veita þann stuðning sem þau geta. Starfsmanni ungmennaráðs er falið að vinna nánar að þeim stuðningi í samstarfi við nemendafélag FAS.