Ungmennaráð Hornafjarðar
87. fundur
8. janúar 2024
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Stefán Birgir Bjarnason
Alexandra Guðrúnardóttir
Sigursteinn Ingvar Traustason
Amylee Vitoria da Silva Trindade
Jón Dagur Ísaksen Hafsteinsson
Smári Óliver Guðjónsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek
verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Ungmennaráð- sameiginlegur fundur með bæjaráði
Bæjarráð var boðað á árlegan fund með Ungmennaráði Hornafjarðar líkt og segir í erindisbréfi ráðsins. Þar mun ungmennaráð fjalla um verkefni liðins árs og stöðuna framundan.
Ungmennaráð tók á móti bæjarráði með æsispennandi Kahoot keppni þar sem þemað var "Innleiðingaráætlun barnvæns sveitarfélags og Ungmennaþing 2023".
Eyrún var í fyrsta sæti, Ásgerður í því öðru og Gauti í þriðja sæti.
Bæjarráð stóð sig mjög vel í leiknum.
Eftir leikinn voru umræður góðar þar sem Ungmennaráð spurði bæjarráð spjörunum úr og sköpuðust áhugaverðar umræður um mikilvægi ungmennaráðs og hvort að Ungmennaráði finnist uppsetningin og starfsform á ráðinu vera vænlegt fyrir sig.
Málefnið ungmennahús var ofarlega í umræðunni og ræddir voru ýmsir möguleikar í þeim málum til hliðsjónar með það húsnæði sem eru til staðar.
Ungmennaráð þakkar bæjarráði kærlega fyrir komuna.

2.
Mannréttindastefna
Bæjarráð vísaði mannréttindastefnunni til umsagnar í nefndum og ráðum.
Ungmennaráð gerir ekki athugasemd við mannréttindastefnuna og fagnar því að hún sé komin fram.
3.
Ungmennaráð - fundartími
Fundartími Ungmennaráðs tekinn til endurskoðunar.
Ungmennaráð vill halda fundartímanum óbreyttum. Fyrsta mánudag hvers mánaðar kl 16:00 - 18:00
4.
Ungmennaráð Fræðsla og samstarf
Farið yfir samstarfsmöguleika með öðrum ungmennaráðum.
Ungmennaráð vill frekara samstarf og mun verkefnisstjóri vinna að skipulagningu fræðsluferðar vegna frekara samstarfs.
Horft er til austurs, en einnig er mikill vilji til að halda áfram samstarfi við Hafnarfjörð. Starfsmanni falið að hefja undirbúning.
Horft er til austurs, en einnig er mikill vilji til að halda áfram samstarfi við Hafnarfjörð. Starfsmanni falið að hefja undirbúning.
5.
Barnvænt sveitarfélag Innleiðing barnasáttmála SÞ
Ungmennaráði hefur verið falið að vinna skýrslu varðandi innleiðingu sveitarfélagsins á barnvænu sveitarfélagi.
Tveir fulltrúar ungmennaráðs munu hefjast handa á að skrifa skýrsluna og mun starfsmaður ungmennaráðs vera þeim innan handar auk verkefnastjóra Barnvæns sveitarfélags.
Amylee og Jón Dagur buðu sig fram í þetta starfsteymi.
Amylee og Jón Dagur buðu sig fram í þetta starfsteymi.
6.
Ungmennaráð - Fræðslu- og frístundarnefnd
Samkvæmt erindisbréfi ungmennaráðs þá á að vera sameiginlegur fundur ungmennaráðs og fræðslu- og frístundarnefndar einu sinni á ári.
Starfsmanni er falið að boða fræðslu- og frístundanefnd á fund með ungmennaráði mánudaginn 5. febrúar kl 16:15.