Ungmennaráð Hornafjarðar
88. fundur
5. febrúar 2024
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Berglind Stefánsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Sigursteinn Ingvar Traustason
Amylee Vitoria da Silva Trindade
Jón Dagur Ísaksen Hafsteinsson
Smári Óliver Guðjónsson
Dagmar Lilja Óskarsdóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek
verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Ungmennaráð - Fræðslu- og frístundarnefnd
Árlegur fundur með fræðslu- og frístundarnefnd.
Ungmennaráð tók á móti fræðslu- og frístundanefnd með æsispennandi Kahoot keppni þar sem þemað var "Innleiðingaráætlun Barnvæns sveitarfélags og ungmennaþing 2023".
1. sæti) Þórgunnur Torfadóttir 2. sæti) Birta Ósk Sigbjörnsdóttir 3. sæti) Róslín Alma Valdimarsdóttir. Fræðslu- og frístundanefnd stóð sig mjög vel í leiknum.
Eftir leikinn voru góðar umræður þar sem ungmennaráð spurði nefndina nokkurra spurninga og sköpuðust áhugaverðar umræður í kjölfarið.
Ungmennahús var ofarlega í umræðunni og ræddir voru ýmsir möguleikar með hliðsjón af því húsnæði sem er til staðar.
Ungmennaráð þakkar fræðslu- og frístundanefnd kærlega fyrir komuna.

2.
Ungmennaráð fræðsla og samstarf
Verkefnastjóri vinnur að skipulagningu fræðsluferðar ungmennaráðs austur í Múlaþing með viðkomu í Fjarðabyggð 18. og 19. apríl
Verkefnisstjóri heldur áfram að vinna að fræðsluferðinni og á að halda sig við dagsetningarnar 18. og 19. apríl.
3.
Ungmennaráð og verkefnin 2023-2024
Tímalína þeirra verkefna sem framundan eru skoðuð og velt fyrir sér þeirri fjárheimild sem ungmennaráð hefur.
Ungmennaráð hefur mikinn áhuga á að fá að taka aftur þátt við uppsetningu á humarhátíð og er með margar hugmyndir m.a. að vinna að ungmennahátíð.
Þar var verkefnastjóra falið að kanna möguleika á skugga kosningum fyrir forsetakosningarnar í júní. Fulltrúar ráðsins eru mjög peppaði fyrir viðburði í tengslum við skuggakosningarnar en athuga þarf með fjármagn.
Verkefnisstjóri er einnig beðinn um að leitast eftir frekara samstarfi og jafnvel að horfa út fyrir landsteinana.