Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

96. fundur
2. desember 2024 kl. 16:30 - 18:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Stefán Birgir Bjarnason
Smári Óliver Guðjónsson
Dagmar Lilja Óskarsdóttir
Selma Ýr Ívarsdóttir
Adam Bjarni Jónsson
Sindri Sigurjón Einarsson
Sigurður Gunnlaugsson
Isold Andrea Andrésdóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Skuggakosningar 2024 Kosið á Alþingi.
Málsnúmer 202411001
Ungmennaráð Hornafjarðar fannst mikilvægt að þeir krakkar í sveitarfélaginu sem ekki höfðu náð aldri til að taka þátt í alvöru kosningum kynnist lýðræðinu sem fylgir Alþingis kosningum og stóðu fyrir skuggakosningum sem fram fóru dagana 28. og 29. nóvember. Krakkar í 8. - 10. bekk Grunnskóla Hornafjarðar og nemendur FAS sem ekki höfðu náð 18 ára aldri var boðið að taka þátt og fengu einnig kynningar frá öllum flokkum. Mikilvægt er fyrir fyrir ráðið ræða verkefnið, rýna í göngin og finna út hvort og hvernig væri hægt að standa betur að verkefninu.
Fulltrúar ráðsins sem stóðu að verkefninu voru almennt mjög sátt við frammistöðuna og fannst kynningarfundurinn takast vel. Þó telja þau að þátttakan í kosningunum hefði mátt vera betri og komu fram með ýmsar hugmyndir um hvernig hægt væri að auka þátttöku. Kjörsókn var einungis 34% og er þá miðað miðað við ungmenni sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu og eru undir 18 ára en 43% ef tekið er mið af þeim sem eru á kjörskrá og eru í skóla á staðnum. Verkefnisstjóri tók niður niður hugmyndir hvernig betur má að málum standa og gætir þess að þær varðveitist til næstu skuggakosninga.
2.
Aðgerðaráætlun 2023 Barnvænt sveitarfélag
Málsnúmer 202312025
Á fundi ungmennaráðs þann 7.október síðastliðinn var tekinn ákvörðun um að vinna myndband til að kynna aðgerðir Barnvæns sveitarfélags. Markmið myndbandsins er tvíþætt, að ungmennin skili sínum niðurstöðum um stöðu aðgerðaráætlunar og að fræða Hornfirðinga um Barnvænt sveitarfélag. Nú er myndbandið nánast tilbúið og er prufu útgáfa sýnd á fundinum.
Ungmennaráð var mjög ánægt með myndbandið þó það vantaði enn nokkra hluti inn í það og hlakkar til að sjá lokaútgáfuna. Það er mikilvægt að ljúka myndbandinu dreifa því um sveitarfélagið því það er góð kynning á verkefninu og allir ættu að skilja það. Fulltrúar ungmennaráðs sem setið hafa lengst í stýrihópnum höfðu einmitt orð á því að nú loksins skyldu þau verkefnið. Verkefnastjóri mun sjá til þess að myndbandið verði kynnt í öllum stofnunum sveitarfélagsins.
3.
Þrykkjan - Opnanir - Ungmennahús aldur
Málsnúmer 202408046
Þrykkjan félagsmiðstöð ungmenna á Hornafirði er opnin sem hér segir;Kl. 14.20 - 16:00 alla virka daga fyrir 5. - 10. bekk. Á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum eru aldurskiptar opnanir fyrir miðstig frá 16:00 - 18:00 og fyrir unglingastig frá 19:30 - 22:00.Þrykkjann er einnig opin fyrir 16 - 20 ára (unmennahúsaldurinn) á fimmtudögum frá 20:00 - 22:00.Starf Þrykkjunnar rætt.
Ungmennaráð er á heildina séð mjög ánægt með Þrykkjuna og finnst hún bara vera kósý og góð. Aðsókn í opnanir á fimmtudögum fyrir 16 - 20 ára hefur reyndar verið heldur dræm en ungmennaráð hvetur þó til þess að halda þeim áfram og auglýsa þær betur. Hins vegar nefna þau að það mætti huga betur að fjármagni sem sé sett í að byggja upp tengslin við aðrar félagsmiðstöðvar, hvort sem það er austur eða suður. Mikilvægt sé fyrir hornfirsk ungmenni að byggja tengsl vítt og breytt um landið og fjölga ballferðum. Að styrkja félagsleg tengsl styrkir ungmennin. Fulltrúi ungmennaráðs frá Þrykkjunni nefnir að Þrykkjuráð telji samstarf við aðrar félagsmiðstöðvar farsælla í austurátt en suðurátt. Suðurlandið sé of fjölmennt til þess að Þrykkjan eigi samleið með þeim landshluta og þá sé Austurlandið nær og því betri kostur.
Varðandi innanstokksmuni og afþreyingarbúnað þá er mikil eftirvænting eftir nýju púlborði en það mætti einnig bæta stóla. Svo mætta fjölga nostur-viðburðum eins og brjóstsykurgerð, jólaföndri, leir, trölladeigi og bæta við púslum, legói og öðrum föndurvörum.
Krakkarnir í ungmennaráði velta fyrir sér hvernig Þrykkjann geti betur nýst 7. bekkingum og hvetur forstöðumann Þrykkjunnar ásamt verkefnastjóra að huga að því.
Einnig var rætt um litina á veggjunum í Þrykkjunni. Þeir eru einhæfir og þarf að bæta úr þeim. Það mætti gefa krökkunum tækifæri á að mála sjálf einhverja veggi. Einnig benda þau á að það mætti ná stjórn á hreyfiskynjurunum því þeir eru ekki skemmtilegir þegar það er verið að reyna að horfa á bíómyndir.
4.
Ungmennaráð 2024-2025
Málsnúmer 202408106
Störf ungmennaráðs rædd. Hver eru markmið ungmennaráðs á nýju ári?
Markmið ungmennaráðs 2025 er klárlega að fá fleira áhrifafólk úr hornfirskri pólitík og stjórnsýslu inn á fundi. Ungmennaráð vill sjá hlutina gerast og er með lista yfir mál sem þarf að ræða. Nokkur mál hafa verið til umsagnar hjá ungmennaráði en svo bólar ekker á þeim. Má þar nefna hreystibraut, æfingatæki, fjölbreyttari leikvelli, útisvæði sem er næs að vera á, gagnstéttin við Silfurbraut, útikörfurnar og önnur æfingasvæði sem eru að grotna niður. Því þó að samtölin séu góð þá upplifa þau að það sé lítið gert við niðurstöður þeirra að afloknum fundum. Ef ungu fólki á að líða eins og það hafi áhrif þá gengur ekki að framkvæmdir taki 5 ár eða meira því þá eru þau ekki lengur börn og jafnvel flutt af svæðinu.
Þá vill ungmennaráð gjarnan koma meira að umræðunni um uppbyggingu íþróttahúss og telur mikilvægt að halda málefnum Barnvæns sveitarfélags á lofti,
Stefnt er að því að boða sviðsstjóra umhverfis, mannvirkja og frístundasviðs á fund ungmennaráðs í janúar. Fræðslu og frístundarnefnd á fund 3. febrúar og bæjarráð 10. mars.