Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

99. fundur
3. mars 2025 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Stefán Birgir Bjarnason
Smári Óliver Guðjónsson
Dagmar Lilja Óskarsdóttir
Selma Ýr Ívarsdóttir
Sindri Sigurjón Einarsson
Sigurður Gunnlaugsson
Emilía Alís Karlsdóttir
Isold Andrea Andrésdóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Barnvænt sveitarfélag lokaskýrsla fyrstu aðgerðaráætlunar 2025
Málsnúmer 202412118
Lokaskýrslu vegna innleiðingar Barnvæns sveitarfélags hefur verið skilað inn til UNICEF. Af því tilefni hefur verkefnastjóri Barnvænna sveitarfélaga hjá UNICEF óskaði eftir samtali ýmsa aðila innan sveitarfélagsins til að fá nánari innsýn í innleiðinguna og upplifun og reynslu þeirra af innleiðingunni. Ungmennaráð er meðal þeirra sem rætt verður við enda hafa fulltrúar þeirra átt sæti í stýrihóp um innleiðingu frá upphafi.
Marín Rós Eyjólfsdóttir og Unnur Helga Ólafsdóttir ræddu við ungmennaráð um aðkomu þeirra að við innleiðingu á Barnvænu sveitarfélagi. Nokkuð líflegar umræður sköpuðust og þakkar ungmennaráð þeim Marín Rós og Unni Helgu kærlega fyrir samtalið.
2.
Opinber heimsókn forseta Íslands til Hornafjarðar
Málsnúmer 202502056
Forseti Íslands kemur í fyrstu opinberu heimsókn sína innanlands til Hornafjarðar 12. - 13. mars. Það er sannur heiður fyrir Austur-Skaftfellinga að fá að taka á móti frú Höllu Tómasdóttur og í heimsókninni gefst íbúum tækifæri til að varpa ljósi á fjölbreytta starfsemi og framtíðarsýn sveitarfélagsins. Ungmennaráð hefur hlutverk í heimsókn forsetans og ætlar m.a. að segja frá starfi ungmennaráðs og sýna myndbandið sem það lét gera. Einnig gefst ungmennaráði tækifæri á að koma skoðunum sínum á framfæri.Til umræðu er aðkoma ungmennaráðs að umræddum viðburð.
Ungmennaráð er þakklátt fyrir beiðnina um að taka þátt í þessari dagskrá og ræddi tvær mögulegar leiðir til að koma að dagskránni í Nýheimum mili kl. 15:00 - 16:30 12. mars.

Tveir fulltrúar voru skipaðir sem ræðumenn, en verkefnastjóra er falið að skipuleggja vinnuna í samstarfi við þá og ráðið í heild. Nákvæmt skipulag verður kynnt á fundi 10. mars.
3.
Ungmennaráð sameiginlegur fundur með bæjaráði
Málsnúmer 202211033
Undirbúningur ungmennaráðs Hornafjarðar fyrir fund með bæjarráði Hornafjarðar 10. mars. Umræðupunktar fundarins byggja að hluta á umræðum frá fundi ungmennaráðs með fræðslu- og frístundarnefnd en einnig verður farið yfir tillögur að aðgerðum sem ungmennaráð mun leggja fram.
Farið var yfir þau mál sem á að ræða, og skiptu meðlimir ungmennaráðs með sér verkefnum sem þau ætla að undirbúa í vikuni í samstarfi við verkefnastjóra.