Fara í efni

Velferðarnefnd

16. fundur
18. ágúst 2022 kl. 16:15 - 17:15
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir formaður
Sveinbjörg Jónsdóttir varaformaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson aðalmaður
Gunnar Stígur Reynisson aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Erla Björg Sigurðardóttir sviðstjóri velferðarsviðs
Fundargerð ritaði:
Erla Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Barnaverndarmál
Málsnúmer 201709341
Bókun færð í trúnaðarmálabók.
2.
Staðan í starfsemi velferðarsviðs
Málsnúmer 202108007
Núverandi fjöldi stöðugilda í fjölskyldu-og félagsþjónustu eru fjögur auk sviðsstjóra. Þar af er 1 stg. vegna tilraunaverkefna í virkniþjónustu og 0,70 stg. vegna tilraunaverkefna í tölfræði og gæðamálum sem reynslan sýnir að sé þörf á áfram í nánustu framtíð. Einnig er þörf á 0,50 stg. vegna innleiðingar á auknum verkefnum samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021 og voru samþykkt 11. júní 2021.
Lagt er til að eftirfarandi stöðugildi í fjölskyldu-og félagsþjónustu verði til frambúðar:
1 stg. í virkniþjónustu (var tilraunaverkefni)
0,70 stg. í tölfræði og gæðamálum (var tilraunaverkefni)
0,50 stg. vegna innleiðingar á auknum verkefnum samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021 og voru samþykkt 11. júní 2021. (ný verkefni).
Nefndin vísar málinu til bæjarráðs.
3.
Aðgengi fólks með skerta starfsgetu að atvinnutækifærum
Málsnúmer 202208035
Velferðarsvið leggur áherslu á mikilvægi þess að stofnunum Sveitarfélagsins Hornafjarðar sé umhugað um að ráða fólk með skerta starfsgetu og/eða fötlun í störf á formi vinnusamnings og fylgi þannig viðmiðum laga, alþjóðlegum sáttmálum og jafnréttisstefnu sveitarfélagsins.
Nefndin fagnar áherslum velferðarsviðs í málefnum fólks með skerta starfsgetu og hvetur stofnanir sveitarfélagsins til að ráða einstaklinga með skerta starfsgetu og sýni þar með gott fordæmi.
4.
Umsýsla með dagforeldrum færist yfir á fræðslusvið
Málsnúmer 202205038
Til upplýsingar um að á fundi fræðslu- og tómstundanefndar 11. maí 2022 var samþykkt að umsýsla með niðurgreiðslum til dagforeldra færðist yfir á fræðslusvið. Í kjölfarið þurfti að skipta reglunum upp. Annars vegar eru það reglur um dagforeldra og hins vegar reglur um niðurgreiðslu til dagforeldra.
Lagt fram til kynningar.
5.
Reglur um daggæslu í heimahúsi
Málsnúmer 202012055
Reglur um daggæslu í heimahúsi án reglna um niðurgreiðslu til dagforeldra. Reglur óbreyttar að öðru leyti.
Lagt fram til kynningar. Nefndin vísar málinu til bæjarráðs.
6.
Fundargerð fjölmenningarráðs
Málsnúmer 202111052
Fundargerð fjölmenningarráðs frá 14. júní 2022 lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.