Fara í efni

Velferðarnefnd

18. fundur
24. nóvember 2022 kl. 16:15 - 17:45
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir formaður
Sveinbjörg Jónsdóttir varaformaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson aðalmaður
Berglind Stefánsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Guðjón Örn Magnússon 1. varamaður
Starfsmenn
Erla Björg Sigurðardóttir sviðstjóri velferðarsviðs
Fundargerð ritaði:
Erla Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Félagslegt leiguhúsnæði
Málsnúmer 202201071
Félagslegar íbúðir í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar eru 40 talsins sem er hlutfallslega há tala miðað við önnur sambærileg sveitarfélög. Í stefnu sveitarfélagsins er að fækka íbúðum í eigu þess skv. reglum um sölu í íbúða í eigu þess. Starfsfólk velferðarsviðs hefur unnið við þarfagreiningu undanfarin ár varðandi þörf fyrir félagslegt leiguhúsnæði í sveitarfélaginu og leggur til að seldar verði allt að 6 íbúðir í eigu þess.
Málinu vísað til bæjarráðs.
2.
Smiðjur - iðja í stuðnings-og virkniþjónustu
Málsnúmer 202211083
Í 24. gr. laga 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir eiga allir að hafa kost á að sækja atvinnu- og hæfnistengda þjónustu við hæfi og sveitarfélögum ber skylda til að starfrækja vinnustaði fyrir verndaða vinnu. Í stuðnings- og virkniþjónustu velferðarsviðs er gert ráð fyrir dagdvöl fatlaðra. Dagdvöl á að innihalda iðju við hæfi þar sem einstaklingar koma saman og vinna í verkefnum sem hafa tilgang og stuðla að bættri heilsu og betri líðan. Í starfsemi velferðarsviðs hefur iðja í dagdvöl fatlaðra verið ábótavant og leggur starfsfólk sviðsins til að gerð verði gangskör í þeim efnum og að veitt verði á næstkomandi ári sérstöku fjármagni til efniskostnaðar fyrir slíka iðju.
Tillaga samþykkt að lagt sé til 1.000.000 kr.- fyrir starfsemi í iðju í dagdvöl fyrir fólk með fötlun. Málinu vísað til bæjarráðs.
3.
Siðareglur kjörinna fulltrúa 2022
Málsnúmer 202208029
Bæjarstjórn lagði til að siðareglurnar verði teknar upp til endurskoðunar í nefndum og bæjarráði. Í siðareglum kjörinna fulltrúa er skráð og skilgreind sú háttsemi sem kjörnir fulltrúar vilja sýna af sér við öll sín störf. Með kjörnum fulltrúum er átt við bæjarfulltrúa sem og alla aðra sem kjörnir eru til setu í nefndum og ráðum Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Lagt fram til kynningar og engar athugasemdir gerðar.
4.
Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks
Málsnúmer 202104012
Skv. 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, með síðari breytingum og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 eru ákvæði um að sveitarfélög veiti akstursþjónustu fyrir fólk með fötlun. Mælt er fyrir að gerðar verði reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um akstursþjónustu fyrir fólk með fötlun með því markmiði að gera þeim sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki vegna fötlunar kleift að stunda atvinnu, nám, njóta tómstunda og vegna aksturs á þjónustustofnanir og vegna annarrar þjónustu sem það nýtur samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Í reglum um akstursþjónustu er einnig gjaldskrá.
Tillaga að reglum um akstursþjónustu og gjaldskrá samþykkt, með fyrirvara um að endurskoða útfærslu á þjónustunni þ.e. fjöldi ferða og tímasetningar ásamt gjaldtöku. Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
5.
Reglur um akstursþjónustu aldraðra
Málsnúmer 202104011
Í X. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 er ákvæði um að sveitarfélög veiti akstursþjónustu fyrir aldraða. Mælt er fyrir að gerðar verði reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um akstursþjónustu aldraðra með því markmiði að gera öldruðum einstaklingum kleift að búa lengur heima. Í reglum um akstursþjónustu er einnig gjaldskrá.
Tillaga að reglum um akstursþjónustu og gjaldskrá samþykkt, með fyrirvara um að endurskoða útfærslu á þjónustunni þ.e. fjöldi ferða og tímasetningar ásamt gjaldtöku. Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
6.
Ekran félagsstarf aldraðra
Málsnúmer 202211081
Í félagsstarfi aldraðra er boðið uppá kaffi og kökur fyrir gesti sem mæta í félasstarf og annað sem er á dagskrá í Ekrunni. Fyrirkomulag hefur verið með þeim hætti að ekki hefur verið mögulegt að greiða eingöngu fyrir kaffi og er upphæðin í dag 700 kr.- fyrir kaffi og köku. Ábending hefur borist til sviðsstjóra velferðarsviðs um að það sé æskilegt að hafa möguleika á að kaupa eingöngu kaffi eða köku.
Tillaga um að kaffi og kökur í félagsstarfi aldraðra í Ekrunni sé aðskilið samþykkt. Gjald fyrir kaffi 200 kr.- og kaka 500 kr.-
7.
Einstaklingsmál
Málsnúmer 202004058
Fært í trúnaðarmálabók.
8.
Fjölmenningarráð - 7
Málsnúmer 2210003F