Fara í efni

Velferðarnefnd

21. fundur
9. febrúar 2023 kl. 16:15 - 18:00
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir formaður
Sveinbjörg Jónsdóttir varaformaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður
Guðjón Örn Magnússon 1. varamaður
Starfsmenn
Erla Björg Sigurðardóttir sviðstjóri velferðarsviðs
Fundargerð ritaði:
Erla Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Öldungaráð - 11
Málsnúmer 2301008F
Fundargerð öldungaráðs lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar og engar athugasemdir við hana.
2.
Hornafjörður náttúrulega
Málsnúmer 202301036
Bæjarráð vísar heildarstefnu sveitarfélagsins Hornafjörður Náttúrulega til kynningar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins. Bæjarstjóri mætir á fundinn og kynnir stefnuna.
Máli frestað.
3.
Barnaverndarlög, samvinna Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu
Málsnúmer 202201012
Samningur um barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Hornafjarðar lagður fram til kynningar.
Samningur um barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar lagður fram til kynningar og velferðarnefnd fagnar þessari samvinnu.
4.
Samningur um rekstur umdæmisráðs barnaverndar á landsbyggðinni
Málsnúmer 202209039
Samningur um rekstur umdæmisráðs barnaverndar á landsbyggðinni lagður fram til kynningar.
Samningur um rekstur umdæmisráðs Landsbyggðar lagður fram til kynningar og velferðarnefnd fagnar þeim breytingum að málaflokkurinn sé nú í höndum fagaðila.
5.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunnar
Málsnúmer 201907018
Jafnréttisáætlun skal endurskoða við upphaf hvers kjörtímabils.
Miklar umræður sköpuðust við yfirferð á Jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar og var nefndin einróma um að hefja strax vinnu við allsherjar endurskoðun á henni. Starfsmanni falið að undirbúa vinnufund nefndar sem verður haldinn í byrjun mars nk.
6.
Gjaldskrár velferðarsviðs
Málsnúmer 202302028
Gjaldskrá velferðarsviðs lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.