Fara í efni

Velferðarnefnd

29. fundur
11. desember 2023 kl. 16:15 - 17:30
í Miðgarði
Nefndarmenn
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir formaður
Sveinbjörg Jónsdóttir varaformaður
Gunnar Stígur Reynisson aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður
Dagmar Lilja Óskarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Ingólfur Guðni Einarsson 1. varamaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson sviðstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Öldungaráð - 13
Málsnúmer 2311009F
Fundargerð 13. fundar öldungaráðs lögð fram til kynningar.
Fundargerð 13. fundar öldungaráðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar lögð fram til kynningar. Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við fundargerðina.
2.
Mannréttindastefna
Málsnúmer 202301007
Bæjarráð vísaði mannréttindastefnunni til umsagnar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Drög að mannréttindastefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar lögð fram til kynningar. Velferðarnefnd gerir engar athugasemdir við efnistök áætlunarinnar en leggur áherslu á mikilvægi þess að hún verði einnig lögð fyrir fjölmenningar- og öldungaráð. Starfsmanni er falið að vinna áfram með viðeigandi aðilum að útfærslu á skyldum velferðarnefndar vegna ábyrgðar á eftirfylgni og endurskoðun áætlunarinnar.

Velferðarnefnd fagnar framtakinu og telur áætlunina geta reynst gott verkfæri í framtíðinni.
3.
Málstefna
Málsnúmer 202309020
Bæjarráð vísaði málstefnunni til umsagnar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Drög að málstefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar lögð fram til kynningar. Velferðarnefnd gerir engar athugasemdir við áætlunina en leggur áherslu á mikilvægi þess að hún verði einnig lögð fyrir fjölmenningarráð. Velferðarnefnd fagnar framtakinu og telur áætlunina geta reynst gott verkfæri í framtíðinni.
4.
Yfirtaka og uppbygging eigna - Félagslegt leiguhúsnæði
Málsnúmer 202309012
Staða viðræðna við leigufélagið Bríet um yfirtöku eigna og uppbyggingu á leigumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði
Starfsmaður velferðarnefndar fór yfir stöðu samningaviðræðna Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Leigufélagsins Bríet um yfirtöku hluta íbúða í eignasafni sveitarfélagsins, og frekari uppbyggingarframkvæmda sem félagið myndi koma að í kjölfarið í sveitarfélaginu.
5.
Atvinna með stuðningi - Átaksmánuður 2023
Málsnúmer 202311011
Átaksverkefni nóvember mánaðar hjá Sveitarfélaginu Hornafirði í tengslum við innleiðingu heildarstefnunnar Hornafjörður Náttúrulega! var að greina tækifæri til að efla þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu Atvinna með stuðiningi á vegum Vinnumálastofnunar.
Farið var yfir greiningu á möguleikum Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem atvinnurekanda, að vera leiðandi í því að stuðla að inngildandi vinnumarkaði í sveitarfélaginu með þátttöku í verkefninu Atvinna með stuðningi sem er á ábyrgð VMST.

Velferðarnefnd vísar niðurstöðunni til frekari umræðu í bæjarráði og felur starfsmanni nefndarinnar að fylgja því eftir í samræmi við umræður á fundinum.
6.
Aðgerðaráætlun 2023 Barnvænt sveitarfélag
Málsnúmer 202312025
Innleiðing á verkefninu Barnvænt Sveitarfélag hefur verið í vinnslu nú í tæp tvö ár. Verið er að klára fjórða fasa innleiðingar ferilsins sem felur í sér að vinna aðgerðaáætlun. Aðgerðaáætlunin er nú tilbúin til umföllunar í nefndum og er því óskað eftir því við allar fastanefndir sveitarfélgsins taki hana til umfjöllunar.
Farið var yfir drög að aðgerðaáætlun vegna innleiðingar á verkefninu Barnvænt sveitarfélag sem er á vegum UNICEF. Umræður sköpuðust um áætlunina þó einkum er varðar aðgerð 8 sem snýr að seinkun skólabyrjunar.

Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við aðgerðaáætlun verkefnisins og fagnar því að komin sé góður skriður á innleiðinguna.
7.
Samningur um innkaup á mat fyrir málefni fatlaðra og aldraðra 2023
Málsnúmer 202312046
Unnið hefur verið að samning milli velferðarsviðs Sveitarfélagsins Hornafjaðar og Vigdísarholts um kaup á mat sem er í boði í hádeginu í Miðgarði, Ekru og inn á heimili í tengslum við Þjónustan heim. Fyrir liggja fyrstu drög að samningnum.
Velferðarnefnd samþykkir samningsdrögin án athugasemda og felur starfsmanni að vinna málið áfram.
8.
Ábending til sveitafélaga um mikilvægi kynja- og jafnréttissjónarmiða
Málsnúmer 202311090
Jafnréttisstofa hefur sent sveitarfélögum ábendingu um mikilvægi kynja- og janfréttissjónarmiða við stefnumótun og ákvarðanatöku í breytingum á fyrirkomulagi leikskóla.
Ábending jafnréttisstofu um mikilvægi kynja- og jafnréttissjónarmiða við stefnumótin og ákvörðunartöku í breytingum á fyrirkomulagi leikskóla lögð fram til kynningar.

Velferðarnefnd þakkar jafnréttisstofu fyrir ábendinguna og tekur undir innihald hennar.
9.
Til umsagnar 509.mál - húsnæðisstefna fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2024-2028
Málsnúmer 202312005
Alþingi óskar eftir umsögn vegna 509. máls - Húsnæðisstefnu fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028
Farið yfir 509. mál - Húsnæðisstefnu fyrir árin 2023-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028.

Velferðarnefnd telur ekki þörf á sérstakri umsögn vegna málsins.
10.
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr.802002, og lögum um félagsþjónustu sveitafélaga, nr.401991
Málsnúmer 202311164
Óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um breyingu á barnaverndarlögum nr. 80/2002, og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
Farið yfir frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum nr. 80/2002 og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

Velferðarnefnd telur ekki þörf á umsögn vegna frumvarpana.