Velferðarnefnd
30. fundur
5. febrúar 2024
kl.
12:00
-
13:30
í Miðgarði
Nefndarmenn
Ragnheiður Rafnsdóttir
formaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Gunnar Stígur Reynisson
aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir
aðalmaður
Guðjón Örn Magnússon
1. varamaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson
sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Menningarstefna 2023
Bæjarráð vísar nýrri menningarstefnu til umsagnar í nefndum sveitarfélagsins. Eyrún Helga Ævarsdóttir forstöðumaður Menningarmiðstöðvar fylgir menningarstefnunni eftir.
Menningarstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árin 2024-2030 lögð fram til kynningar. Eyrún forstöðumaður MMH kom og fylgdi stefnunni eftir. Velferðarnefnd gerir engar athugasemdir við menningarstefnuna og þakkar Eyrúnu fyrir kynninguna.
2.
Fjölmenningarráð - 14
3.
Starfsemi velferðarsviðs 2024
Ráðning í stöðu stjórnanda stuðnings- og virkniþjónustu. Sigrún Bessý Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í stöðu stjórnanda stuðnings- og virkniþjónustu og mun taka við af Sigríði Helgu Axelsdóttur sem lætur af störfum 31.3.2024.
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir kynnt sem nýr stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu. Hún er boðin velkomin til starfa á sama tíma og nefndin þakkar Sigríði Helgu kærlega fyrir vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.
4.
Gjaldskrár 2024
Gjalskrá velferðarsvið fyrir árið 2024 lögð fram til kynningar eftir að viðeigandi upphæðir og viðmið hafa verið uppfærð samkvæmt reglugerðum og vísitölu.
Gjaldskrá velferðarsviðs 2024 lögð fram til kynningar. Verð á mat hefur verið uppfært í samræmi við innkaupaverð frá Vigdísarholti frá áramótum. Aðrar breytingar eru skv. viðeigandi reglugerðum eða vísitöluhækkunum í samræmi við reglur.
5.
Fjárhagsaðstoð
Trúnaðarmál
Fært í trúnaðarmálabók
6.
Rekstarleiga bifreiða stuðnings- og virkniþjónustu
Minnisblað vegna rekstur bifreiða velferðarsviðs árið 2023. Nokkur viðbótarkostnaður hefur verið vegna óvæntra útgjalda í tengslum við rekstrarleigu. Fyrir liggja tillögur til að minnka líkur á óvæntum kostnaði.
Málinu vísað áfram til bæjarráðs og starfsmanni falið að fylgja málinu eftir í samræmi við umræður á fundinum.
7.
Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Farið yfir stöðu á samningaviðræðum milli ríkis og sveitarfélaga vegna endurnýjunar á samning um samræmda móttöku flóttafólks.
Starfmaður upplýsir nefndina um stöðu á samningaviðræðum milli ríkis og sveitarfélaga um endurnýjun á samningi um samræmda móttöku flóttafólks.
8.
Kostnaðar- og ábyrgðarskiptin ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk
Fyrsta áfangaskýrsla um kostnaðar- og ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk lögð fram til kynningar
1. Áfangaskýrsla við úttekt á kostnaðar- og ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk lögð fram til kynningar.
9.
Til umsagnar 629.mál Barnaverndarlög (endurgreiðslur)
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 629. mál Barnaverndarlög (endurgreiðslur).
Velferðarnefnd telur ekki þörf á umsögn vegna breytinga á barnaverndarlögum 80/2002.