Fara í efni

Velferðarnefnd

31. fundur
4. mars 2024 kl. 16:15 - 17:10
í Miðgarði
Nefndarmenn
Ragnheiður Rafnsdóttir formaður
Gunnar Stígur Reynisson aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður
Ingólfur Guðni Einarsson 1. varamaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Fjölmenningarráð - 15
Málsnúmer 2402007F
Fundargerð 15. fundar fjölmenningarráðs lögð fram til kynningar.
2.
Starfsemi velferðarsviðs 2024
Málsnúmer 202402003
Minnisblað um starfssemi velferðarsviðs árið 2024 lagt fram til umfjöllunar.
Ráðning Aleksöndru Ksepko sem ráðgjafi virkniþjónustu kynnt nefndinni. Aleksandra boðin velkomin til starfa.

Farið yfir minnisblað stjórnanda varðandi starfsemi velferðarsviðs 2024. Málinu vísað til bæjarráðs til umfjöllunar skv. umræðum á fundinum.
3.
Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Málsnúmer 202304055
Drög að endurnýjun samnings um samræmda móttöku flóttafólks lagður fram til umfjöllunar.
Farið yfir drög að nýjum skammtímasamning um samræmda móttöku flóttafólks. Nefndin telur að samningurinn sé skref í rétta átt en leggur áherslu á að áframhaldandi vinna fari fram þar sem unnið er að sanngjörnum samning til framtíðar. Málinu er vísað áfram til afgreiðslu í bæjarráði.
4.
Fjárhagsaðstoð
Málsnúmer 202402084
Bókað í trúnaðarmálabók
Bókað í trúnaðarmálabók
5.
Landneminn samfélagsfræðsla
Málsnúmer 202402125
Samstarfsverkefni fjölmenningarráðs og Fræðslunet Suðurlands um innleiðingu á námskeiði í samfélagsfræði fyrir erlendaíbúa. Markmið verkefnisíns er að hjálpa íbúum að aðlagast samfélgainu enn betur og auka þekkingu þeirra á íslensku samfélagi og menningu.
Samstarfsverkefni fjölmenningarráðs og Fræðslunets Suðurlands um innleiðingu á námskeiði í samfélagsfræði fyrir erlenda íbúa. Markmið verkefnisíns er að hjálpa íbúum að aðlagast samfélgainu enn betur og auka þekkingu þeirra á íslensku samfélagi og menningu. Lagt er til að velferðarsvið úthluti verkefninu 300.000 kr. fyrsta árið. Fjármagnið rúmast innan fjárheimilda sviðsins. Tillaga samþykkt.
6.
Umsögn Búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum
Málsnúmer 202402101
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 115. mál, Búsetuöryggi í dvalar og hjúkrunarrýmum. Óskað var eftir umsögn eigi síður en 1. mars s.l. og er málið því lagt fram til kynningar.
Umsögn vegna 115. máls um búsetuöryggi í davalar- og hjúkrunarrýmum lögð fram til kynningar. Velferðarnefnd tekur undir efni umsagnarinnar.