Velferðarnefnd
32. fundur
8. apríl 2024
kl.
16:15
-
17:15
í Miðgarði
Nefndarmenn
Ragnheiður Rafnsdóttir
formaður
Sveinbjörg Jónsdóttir
varaformaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Gunnar Stígur Reynisson
aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir
aðalmaður
Dagmar Lilja Óskarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson
sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Samþætt heimaþjónusta og heimahjúkrun
Verið hefur til skoðunar að taka upp samræmt matstæki við mat á þjónustuþörf í Þjónustan heim. Það er álit starfsmanna að RAi matstækið sé best til þess fallið, auk þess sem innleiðing þess í heimahjúkrun er hluti af landsátaki í málefnum aldraðra, Gott að eldast.
Innleiðing á Rai-mati í þjónustu stuðnings- og virkniþjónustu velferðarsviðs kynnt. Herdís Hjörleifsdóttir félagsráðgjafi mun aðstoða við innleiðingu á matstækinu og sjá um þjálfun starfsfólks. Velferðarnefnd fagnar innleiðingunni.
2.
Öruggara Suðurland - Svæðisbundið samráð
Öruggara Suðurland er samráðsvettvangur gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á suðurlandi milli Sýslumannsins á Suðurlandi, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Lögreglustjórans á suðurlandi og sveitarfélaga á Suðurlandi. Markmið samráðsins er að auka markvisst þekkingu á málaflokkum samstarfsaðila á afbrota- og forvarnarvinnu á Suðurlandi og á þeirri þjónustu sem verið er að veita borgurum í landshlutanum, kynna nýjungar og þjónustu í málaflokknum, styrkja undirstöður til framtíðar fyrir svæðisbundið samstarf gegn ofbeldi og öðrum afbrotum, efla samvinnu við úrlausn mála, ásamt því að efla samstarfsaðila í að takast á við málefni jaðarsettra hópa, ofbeldi og önnur afbrot.
Drög að samstarfsyfirlýsingu í tengslum við verkefnið Öruggara suðurland lögð fram til kynningar. Samstarfyfirlýsingunni vísað áfram til bæjarráðs til umfjöllunar.
3.
Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar - 2024
Þann 1.3.2023 tók gildi samningur um barnaverndarþjónustu Fjarðarbyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Samkvæmt 9. gr. samningsins átti að endurskoða hann fyrir 31. desember 2023. Aðilar samningsins voru einróma sammála um að ganga frá endurnýjun samningsins og er nú nýr samningur lagður fram til kynningar.
Endurnýjaður samningur lagður fram til kynningar. Velferðarnefnd vísar samningnum áfram til umfjöllunar í bæjarráði.
4.
Til umsagnar 143.mál um málefni aldraðra (réttur til sambúðar)
Óskað er eftir umsögnum um 143. mál um málefni aldraðra. Frumvarpið snýr að rétti einstaklinga til sambúðar þegar annar aðili dvelur á stofnun fyrir aldraða.
Velferðarnefnd felur starfsmanni nefndar að gera umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
5.
Fjárhagsaðstoð
Bókað í trúnaðarmálabók
6.
Fjárhagsaðstoð
Bókað í trúnaðarmálabók
7.
Velferðarnefnd 2022-2026
Umræða um fundartíma velferðarnefndar
Fundartími velferðarnefndar og ungmennaráðs skarast, fyrsta mánudag í mánuði. Velferðarnefnd samþykkir að færa fundartíma sinn til annars mánudags í hverjum mánuði.