Fara í efni

Velferðarnefnd

33. fundur
13. maí 2024 kl. 16:15 - 17:20
í Miðgarði
Nefndarmenn
Sveinbjörg Jónsdóttir varaformaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson aðalmaður
Gunnar Stígur Reynisson aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður
Dagmar Lilja Óskarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Tinna Rut Sigurðardóttir 2. varamaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Fjölmenningarráð - 16
Málsnúmer 2403018F
Anna Birna Elvarsdóttir kom og gerði grein fyrir fundargerð 16. fundar fjölmenningaráðs.
2.
Bara tala - smáforrit
Málsnúmer 202404057
Bara tala er stafrænn íslenskukennari sem byggir á gervigreind og íslenskri máltækni, endalausn sem byggir á kjarnalausnum íslensku máltækniáætlunarinnar. Boðið er upp á starfstengt íslenskunám og grunnnámskeið í íslensku fyrir vinnustaði. Með notkun sjónrænna vísbendinga og mynda geta notendur auðveldlega bætt orðaforða sinn, hlustunarfærni og hagnýtt minni, sem gefur þegar fram í sækir aukið sjálfstraust þegar íslenska er töluð. Anna Birna Elvarsdóttir verkefnastjóri fjölmenningar- og gæðamála kemur á fundinn og kynni Bara tala og hvernig til stendur að innleiða það.
Anna Birna Elvarsdóttir kynnir Bara tala íslensku kennslu appið. Velferðarnefnd fagnar því að sveitarfélagið hafi ákveðið að bjóða starfsfólki sínu uppá að nýta sér appið frítt í eitt ár.

Velferðarnefnd þakkar Önnu Birnu fyrir góða kynningu.
3.
Öldungaráð - 14
Málsnúmer 2404018F
Skúli Ingibergur gerði grein fyrir fundargerð 14. fundar öldungaráðs.
4.
Fjárhagsaðstoð
Málsnúmer 202404104
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók
5.
Ársskýrsla 2023
Málsnúmer 202403067
Ársskýrsla velferðarsviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2023 lögð fram til kynningar.
Skúli Ingibergur fer yfir ársskýrslu velferðarsviðs fyrir árið 2023.