Velferðarnefnd
34. fundur
12. ágúst 2024
kl.
16:15
-
00:00
í Miðgarði
Nefndarmenn
Ragnheiður Rafnsdóttir
formaður
Sveinbjörg Jónsdóttir
varaformaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Gunnar Stígur Reynisson
aðalmaður
Þórdís Þórsdóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson
sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Fjölmenningarráð - 17
Fundargerð 17. fundar fjölmenningarráðs sem fram fór þann 5.6.2024 lögð fram til kynningar.
Anna Birna fór yfir fundargerð 17. fundar fjölmenningarráðs.
Nefndin hvetur öll til að kynna sér starfsemi samtakana W.O.M.E.N.
Nefndin hvetur öll til að kynna sér starfsemi samtakana W.O.M.E.N.
2.
Endurskoðun reglna um sérstakan húsnæðisstuðning
Sveitarfélögum ber að setja sér reglur um sérstakan húsnæðisstuðning skv. lögum 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga með síðari breytingum. Núverandi reglur sveitarfélagsins voru samþykktar í lok árs 2016 þegar lögin voru samþykkt og hafa ekki verið endurskoðaðar síðan að því undanskildu að tekju- og eignamörk eru uppfærð um hver áramót. Nú er lögð fram tillaga að nýjum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning í Sveitarfélaginu Hornafirði þar sem þær eru aðlagaðar að skipuriti og verkferlum á velferðarsviði, viðmið og ákvæði þeirra eru samræmd því sem tíðkast í öðrum sveitarfélögum og innleitt samræmt mat á félagslegum aðstæðum umsækjanda.
Lögð fram tillaga að nýjum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning í Sveitarfélaginu Hornafirði. Velferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna og vísar málinu áfram til umfjöllunar í bæjarráði.
3.
Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks
Lagðar eru fram tillögur að reglum um akstursþjónustu fatlaðra í Sveitarfélaginu Hornafirði. Reglur um akstursþjónustu fatlaðra eru settar fram með vísan í 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1990 með síðari breytingum. Þar er kveðið á um að fatlað fólk skuli eiga kost á akstursþjónustu sem miðar að því að það geti farið allra sinna ferða með þeim hætti sem það kýs. Markmið akstursþjónustu er að gera þeim sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki vegna fötlunar kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda.
Tillaga að reglum um aksturþjónustu fatlaðra lögð fram. Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna og vísar henni til frekari umfjöllunar í notendaráði fatlaðs fólks áður en málið fer fyrir bæjarráð.
4.
Reglur um akstursþjónustu aldraðra
Lögð eru fram drög að reglum um akstursþjónustu aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði. Reglurnar eru byggðar á X. kafla laga um félagsþjónustu Sveitarfélaga nr. 90/1991 með síðari breytingum. Í 38.gr. laganna kemur fram að sveitarstjórn skuli stuðla að því að aldraðir geti búið við eðlilegt heimilislíf í umgengni við aðra svo lengi sem verða má. Jafnframt verði tryggð nauðsynleg stofnanaþjónusta þegar hennar er þörf.
Tillaga að reglum um akstursþjónustu aldraðra lögð fram. Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna og vísar henni áfram til umfjöllunar í öldungaráði áður en málið fer fyrir bæjarráð.
5.
Starfsemi velferðarsviðs 2024
Lagðar eru fram lykiltölur í sex mánaða uppgjöri á rekstri velferðarsviðs.
Farið yfir lykiltölur í rekstri velferðarsviðs fyrstu 6 mánuði ársins 2024. Rekstrartölur gefa til kynna að rekstur sviðsins verði innan ramma fjárhagsáætlunar sem er vel.