Fara í efni

Velferðarnefnd

35. fundur
16. september 2024 kl. 16:15 - 18:00
í Miðgarði
Nefndarmenn
Ragnheiður Rafnsdóttir formaður
Sveinbjörg Jónsdóttir varaformaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður
Dagmar Lilja Óskarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Innleiðing á Dala Care í Stuðnings- og virkniþjónustu
Málsnúmer 202409039
Innleiðing á hugbúnaði Dala Care í stuðnings- og virkniþjónustu hófst í ágúst á þessu ári. Hugbúnaðinum er ætlað að bæta utanumhald, þjónustu, samskipti þjónustuþega og eftir atvikum aðstandendur þeirra hjá stuðnings- og virkniþjónustu verðferðarsviðs. Miklar vonir eru bundnar við innleiðinguna og er það einskær von starfsmanna að með henni verði hægt að bæta þjónustu og gagnsæi. Aðilar frá Dala Care kynna hugbúnaðinn og hvernig hann mun gagnast þjónustunni og notendum hennar.
Finnur Magnússon og Hanna Rut Sigurjónsdóttir frá Dala Care komu inn á fundinn og kynntu hugbúnaðinn fyrir nefndinni. Um er að ræða skýjalausn sem býður uppá tvö kerfi, annarsvegar stjórnendahluta þar sem þjónustan er skipulögð og samskiptum við þjónustunotenda stýrt. Hins vegar farsíma forrit(app) sem er sá hluti kerfisins sem þjónustunotendur og/eða aðstandendur þeirra hafa aðgang að. Í þeim hluta fá þeir yfirsýn yfir þá þjónustu sem snýr að þeim sem og samskiptum við þjónustuveitanda. Þá mun kerfið halda utanum innheimtu á þeirri þjónustu sem boðið er uppá og vera beintengt bókhaldi og bókhaldskerfi svetarfélagsins, en það mun auðvelda utanumhald til muna og bæta innheimtuferlið til muna.

Markmið Dala Care er að hafa viðmótið eins auðvelt og notendavænt og hægt er svo allir aðilar geti aðlagast því á sem skemmstum tíma.

Kerfið hefur verið innleitt í þjónustu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Vestmannaeyjarbæjar með góðum árangri. Mörg önnur sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir eru að innleiða það inní sína þjónustu í dag.

Nefndin þakkar kærlega fyrir góða kynningu og fagnar innleiðingu á hugbúnaðinum.
2.
Fjölmenningarráð - 18
Málsnúmer 2407004F
Fundargerð 18. fundar fjölmenningarráðs sem fram fór 16. ágúst síðastliðinn lögð fram til kynningar.
Nefndin gerir engar athugasemdir við fundargerð fjölmenningarráðs.

Velferðarnefnd tekur undir með fjölmenningarráði og hvetur einstaklinga sem hafa áhuga á að taka þátt rannsókn dr. Sigrúnar Ólafsdóttur um heilsu, ójöfnuð og velferðarkerfi með áherslu á innflytjendur, um að bjóða sig fram í viðtal.
3.
Reglur um notendasamninga við fatlað fólk og fjorsjáraðila fatlaðra barna
Málsnúmer 202409036
Lögð er fram tillaga að reglum um notendasamninga við fatlað fólk og forsjáraðila fatlaðra barna í Sveitarfélaginu Hornafirði. Notendasamningar fela í sér að notandi stjórnar þeirri aðstoð sem hann á rétt á skv. mati, skipulaggur hana, ákveður hvenær og hvar hún er veitt og velur aðstoðarfólk. Skv. 10. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 með síðari breytingum, er einstakling heimilt að sækja um notendasamning við sveitarfélagið um þjónustuform og fyrirkomulag stuðnings eða aðstoðar. Markmið notendasamnings er að auka val einstaklinga um þjónustuform og fyrirkomulag stuðnings eða aðstoðar, að undangengnu faglegu mati.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við framlögð drög að reglum um notendasamninga við fatlað fólk og forsjáraðila fatlaðra barna í Svetarfélaginu Hornafirði og vísar málinu áfram til afgreiðslu hjá bæjarráði.
4.
Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð
Málsnúmer 202409038
Lögð er fram tillaga að uppfærðum reglum um fjárhagsaðstoð í Sveitarfélaginu Hornafirði. Núverandi reglur tóku gildi árið 2016 og því mikilvægt að uppfæra þær t.d. með tilliti til þeirra laga og reglugerðabreytinga sem hafa átt sér stað í samfélaginu á þeim tíma, sem og aðlaga þær að núverandi skipuriti velferðarsviðs.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við framlögð drög að reglum um fjárhagsaðstoð í Sveitarfélaginu Hornafirði. Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði.