Velferðarnefnd
40. fundur
10. mars 2025
kl.
16:00
-
17:45
í Miðgarði
Nefndarmenn
Sveinbjörg Jónsdóttir
varaformaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir
aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir
formaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
2. varamaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson
sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Fjölmenningarráð - 21
Fundargerð 21. fundar fjölmenningarráðs lögð fram til kynningar
Anna Birna gerði grein fyrir fundargerð 21. fundar fjölmenningarráðs.
Velferðarnefnd þakkar Önnu Birnu fyrir góða yfirferð og fagnar kraftinum í fjölmenningarráði.
Einnig hvetur nefndin sem flesta til að skrá sig á fjölmenningarlegu bíósýningarnar sem eru framundan.
Velferðarnefnd þakkar Önnu Birnu fyrir góða yfirferð og fagnar kraftinum í fjölmenningarráði.
Einnig hvetur nefndin sem flesta til að skrá sig á fjölmenningarlegu bíósýningarnar sem eru framundan.
2.
Öldungaráð - 17
Fundargerð 17. fundar öldungaráðs lögð fram til kynningar
Farið yfir fundargerð 17. fundar öldungaráðs.
Velferðarnefnd þakkar fyrir yfirferðina.
Velferðarnefnd þakkar fyrir yfirferðina.
3.
Frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) framkvæmdi frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu á síðasta ári. Sveitarfélagið Hornafjörður vinnur nú að úrbótum í kjölfar þeirrar athugunar samkvæmt úrbótaáætlun og miðar þeirri vinnu vel áfram og klárast hún í september á þessu ári. GEV hefur nú gefið út skýrslu um frumkvæðisathugunina og er hún hér með lögð fram til kynningar.
Farið yfir skýrslu GEV vegna frumkvæðisathugunar á reglum varðandi málefni fatlaðs fólks.
Vel hefur gengið að verða við þeim ábendingum sem fram komu frá GEV á sínum tíma.
Velferðarnefnd þakkar fyrir yfirferðina.
Vel hefur gengið að verða við þeim ábendingum sem fram komu frá GEV á sínum tíma.
Velferðarnefnd þakkar fyrir yfirferðina.
4.
Reglur um notendasamninga
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála kom með ábendingar um úrbætur á nýjum reglum Sveitarfélagsins Hornafjarðar um notendasamninga sem samþykktar voru á 327. fundi bæjarstjórnar þann 17. október 2024. Ábendingarnar snérust fyrst og fremst að því að orðalag í reglunum félli ekki nógu vel að 28. gr. félagsþjónustulaga nr. 40/1991. Lögð er fram tillaga að breytingum á reglum um notendasamninga í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Farið yfir breytingar sem gerðar voru í samræmi við ábendingar frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við breytingarnar og vísar málinu áfram til umræðu í bæjarráði.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við breytingarnar og vísar málinu áfram til umræðu í bæjarráði.
5.
Fjárhagsaðstoð 2025
Farið yfir samanburð milli sveitarfélaga á upphæðum fjarhagsaðstoðar til framfærslu og styrkja til einstaklinga undir grunnviðmiðum.
Sviðsstjóri fór yfir samanburð á upphæðum fjárhagsaðstoðar milli sveitarfélaga. Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar hjá sveitarfélaginu er 223.273 kr. á mánuði sem er sambærilegt öðrum sveitarfélögum sem við berum okkur saman við bæði á suður- og austurlandi.
6.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Sviðsstjóri velferðarsviðs leggur fram tillögðu að tímalínu um vinnslu framtíðarsýnar fyrir málefni aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árin 2026-2034 og minnisblað um framkvæmd þess.
Farið yfir fyrirhugaða áætlun um vinnu að framtíðarsýn um málefni aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði. Velferðarnefnd leggur til að tveir fulltrúar verði í vinnuhópnum og útnefnir Tinnu Rut Sigurðardóttur og Írisi Heiði Jóhannsdóttur.
Samþykkt einróma.
Samþykkt einróma.
7.
Drög að tillögu um þingsályktun - Stefna um farsæld Barna til ársins 2035
Mennta- og barnamálaráðherra hefur kynnt til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda drög að stefnu um farsæld barna til ársins 2035. Um er að ræða fyrstu heildarstefnu íslenskra stjórnvalda um málefni barna. Mennta- og barnamálaráðuneytið hvetur haghafa og aðra áhugasama um málefni barna að veita umsögn. Umsagnarfrestur er til og með 12. mars.
Farið yfir drög að þingsályktunartillögu varðandi stefnu um farsæld barna til ársins 2035.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við drögin að þingsályktunartillögunni.
Velferðarnefnd fagnar því að loks séu komin drög að stefnu í málefnum barna á Íslandi.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við drögin að þingsályktunartillögunni.
Velferðarnefnd fagnar því að loks séu komin drög að stefnu í málefnum barna á Íslandi.
8.
Innkaup á mat - Velferðarsvið
Núverandi samningur við Vigdísarholt um innkaup á mat fyrir starfsemi velferðarsviðs rennur út 1.6.2025. í 5. gr. samningsins er möguleiki á framlengingu til tveggja ára. Taka þarf afstöðu til hvort framlengja skuli samninginn eða leita til aðila um tilboð.
Velferðarnefnd leggur til að samþykkt verði að framlengja samningnum um tvö ár. Málinu vísað til umræðu í bæjarráði.