Fara í efni

Velferðarnefnd

42. fundur
10. júní 2025 kl. 16:00 - 18:00
í Miðgarði
Nefndarmenn
Sveinbjörg Jónsdóttir varaformaður
Gunnar Stígur Reynisson aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir formaður
Ingólfur Guðni Einarsson aðalmaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Fjölmenningarráð - 23
Málsnúmer 2506002F
Fundargerð 23. fundar fjölmenningarráðs lagt fram til kynningar
Velferðarnefnd þakkar Önnu Birnu fyrir góða yfirferð.
2.
Vettvangsferðir fjölmenningarráðs
Málsnúmer 202505067
Fjölmenningarráð hefur óskað eftir að sækja vettvangsferðir, 1-2x á ári. Verkefnastjóri hefur unnið kostnaðargreiningu á og útfærlsu á fyrirkomulagi heimsókna.Fjölmenningarráð vísaði málinu til frekari umræðu innan velferðarnefndar á 23. fundi sínum 4.6.2025.
Málið lagt fram til kynningar. Velferðarnefnd tekur undir að þessar ferðir verði gagnlegar fyrir ráðið og skapað mikilvæg tengsl. Velferðarnefnd tekur jákvætt í hugmyndirnar og telur mikilvægt að skoðað verði vel með hvaða hætti er best að skapa ramma utanum þessar ferðir með það fyrir augum að þær skili sem mestum árangri fyrir ráðsmenn.

Málinu vísað til frekari umfjöllunar í bæjarráði.
3.
Notendaráð fatlaðs fólks - 1
Málsnúmer 2505006F
Fundargerð fyrsta fundar notendaráðs fatlaðs fólks lögð fram til kynningar
Sigrún Bessý gerði grein fyrir fundargerð fyrsta fundar notendaráðs fatlaðs fólks.

Velferðarnefnd þakkar kærlega fyrir góða yfirferð.

Velferðarnefnd fagnar því sérstaklega að þetta mikilvæga ráð hafi tekið til starfa.
4.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Málsnúmer 202412045
Í upphafi árs var ákveðið að hefja undirbúning við mótun framtíðarsýnar í málefnum aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árin 2026-2034. Ákveðið var að stofna vinnuhóp vegna vinnslunnar og var hann skipaður fulltrúm bæjarstjórnar, velferðarnefndar, Félagi eldri Hornfirðinga og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Hópurinn hóf undirbúning við tvær vinnustofur sem haldnar voru í apríl og maí og voru vel sóttar og þóttu heppnast vel. Hópurinn hefur nú fundað sex sinnum og unnið úr niðurstöðum vinnustofanna.
Farið yfir þá vinnu sem átt hefur sér stað við mótun framtíðarsýnar í málefnum aldraðra.

Málinu vísað áfram til frekari umræðu í bæjarráði og öldungaráði.
5.
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk - Þarfagreining
Málsnúmer 202310117
Undanfarin misseri hefur verið unnin vinna við greiningu á möguleikum við uppbyggingu sérstaks búsetuúrræðis fyrir fatlað fólk í Sveitarfélaginu Hornafirði. Sviðsstjóri leggur fyrir minnisblað um þá vinnu og möguleg næstu skref.
Farið yfir stöðuna á þarfagreiningu vegna mögulegrar uppbyggingar á búsetuúrræði fyrir fatlað fólk.

Velferðarnefnd telur þetta gríðarlega mikilvæga vinnu, þarft að halda áfram með hana og stefna á uppbyggingu við fyrsta tækifæri.

Málinu vísað áfram til frekari umræðu í notendaráði fatlaðs fólks og bæjarráði.