Fara í efni

Velferðarnefnd

45. fundur
10. nóvember 2025 kl. 16:15 - 18:26
í Miðgarði
Nefndarmenn
Sveinbjörg Jónsdóttir varaformaður
Gunnar Stígur Reynisson aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir formaður
Ingólfur Guðni Einarsson aðalmaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Fjölmenningarráð - 25
Málsnúmer 2509020F
Fundargerð 25. fundar fjölmenninarráðs lögð fram til kynningar
Velferðarnefnd þakkar fyrir yfirferðina og gerir ekki athugasemdir við fundargerð.
2.
Öldungaráð - 20
Málsnúmer 2510022F
Fundargerð 20. fundar öldungaráðs lögð fram til kynningar
Velferðarnefnd þakkar fyrir yfirferðina og gerir ekki athugasemdir við fundargerðina.
3.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Málsnúmer 202412045
Frá því í vor hefur verið unnið að gerð framtíðarsýnar í málefnum aldraðra fyrir árin 2026-2034 í Sveitarfélaginu Hornafirði. Haldnar voru vinnustofur í þéttbýlinu í apríl og maí, niðurstöður þeirra lagðar fyrir íbúaráð í dreifbýli og haldin voru opin hús í félagsheimilum í dreifbýlinu dagana 9.-11. september. Nú liggja fyrir drög að stefnunni sem byggja á þeirri vinnu sem hefur farið fram og lagðar eru fyrir fastanefndir sveitarfélagsins til kynningar og umsagnar.
Drög að framtíðarsýn um málefni aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði 2026-2034 lögð fram til kynningar. Velferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við drögin og vísar þeim áfram til frekari umræðu í bæjarráði.

4.
Hönnun Ekra- endurbætur viðbygging
Málsnúmer 202503079
Unnið hefur verið að hönnunarvinnu vegna breytinga og endurbóta á fyrstu hæð Ekrunnar undanfarna mánuði. Farið verður yfir stöðu verkefnisins og þær hugmyndir sem komnar eru lagðar fram til kynningar.
Farið yfir hugmyndir að breytingum sem fram eru komnar á neðstu hæð Ekrunnar þar sem dagþjónusta og félagsstarf aldraðra er til húsa. Einnig farið yfir hugmyndir um framtíðaruppbyggingu á svæðinu í kringum Ekruna.

Velferðarnefnd leggur áherslu á að hugsað sé fram í tímann og að húsnæðisþörf aldraðra verði mætt. Einnig er mikilvægt að uppbygging taki mið af þörfum íbúa, rýri ekki þjónustugæði og áhersla sé lögð á samfellu og heildarsýn við alla hönnun.
5.
Frístundastyrkur fyrir eldri borgara
Málsnúmer 202509091
Umræða um hugmyndir um frístundastyrk fyrir eldri borgara. Málefnið hefur þegar verið rætt í fræðslu- og frístundanefnd og öldungaráði.
Farið yfir minnisblað um hugmynd um frístundastyrk fyrir eldri borgara. Velferðarnefnd tekur undir með bókun Öldungaráðs og leggur til að hugmyndin verði sett inn í vinnu spretthóps "Heilsuþjálfun Höfn" sem tekur til starfa 2026.
6.
Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Málsnúmer 202304055
II viðauki samnings um samræmda móttöku var undirritaður af sviðsstjóra velferðarsviðs á dögunum og er hann hér með lagður fram til kynningar.
Viðauki II við samning um samræmda móttöku lagður fram til kynningar.
7.
Endurskoðun reglna um sérstakan húsnæðisstuðning
Málsnúmer 202510012
Tillaga á breytingum á reglum Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna sérstaks húsnæðisstuðnings og matskvarða lagðar fram til kynningar. Breytingarnar byggja á nýjum leiðbeiningum Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, annarsvegar vegna árlegrar uppfærslu og hins vegar vegna breytinga sem gerðar voru á örorkulífeyriskerfinu og tóku gildi 1. september s.l.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning. Nefndin leggur til að upphæðir í 7. og 11. gr. reglanna taki hækkunum í samræmi við vísitölu.