Fara í efni

Velferðarnefnd

48. fundur
9. febrúar 2026 kl. 16:15 - 17:50
í Miðgarði
Nefndarmenn
Gunnar Stígur Reynisson aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir formaður
Ingólfur Guðni Einarsson aðalmaður
Theódór Árni Stefánsson Fulltrúi ungmennaráðs
Guðjón Örn Magnússon 1. varamaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Félagsfærni, samkennd og samskipti ungmenna í sveitarfélaginu
Málsnúmer 202601090
Svanfríður Eygló Arnardóttir og Björn Daníel Sverrisson mæta á fundinn til að gera grein fyrir vinnu vinnuhóps sem settur var á fót í upphafi árs. Hlutverk hópsins er að móta samstarfsverkefni á vegum velferðarsviðs, fræðslu- og frístundasviðs, Grunnskóla Hornafjarðar og Ungmennafélagsins Sindra. Verkefnið snýr að vinnu við að auka félagsfærni, samkennd og jákvæð samskipti ungmenna í Sveitarfélaginu Hornafirði. Vonast er til að þegar fram líði stundir munu samstarfsaðilum að verkefninu fjölga og um verði að ræða verkefni sem verði fastur liður í barna og ungmennastarfi í sveitarfélaginu til framtíðar.
Svanfríður og Björn gerðu grein fyrir verkefninu, tilgangi þess, markmiðum og hvar vinnan er stödd í dag. Velferðarnefnd fagnar því að verkefnið sé komið af stað og hlakkar til að sjá það þróast áfram.
2.
Rekstrarleiga bifreiða - Stuðnings- og virkniþjónusta
Málsnúmer 202602040
Verið er að endurskoða samninga um langtíma rekstrarleigu bifreiða stuðnings- og virkniþjónustu. Sviðsstjóri og stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu fara yfir minnisblað um stöðu verkefnisins.
Farið yfir minnisblað um endurskoðun á þjónustusamningi vegna rekstrarleigu þjónustubifreiða stuðnings- og virkniþjónustu. Starfsmönnum falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
3.
Öldungaráð - 21
Málsnúmer 2601016F
Fundargerð 21. fundar öldungaráðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem haldin var 4. febrúar s.l. lögð fram til kynningar
Gert grein fyrir fundargerð 21. fundar öldungaráðs. Velferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fundargerðina.
4.
Hönnun Ekra- endurbætur viðbygging
Málsnúmer 202503079
Loka hönnun og áætlanir í tengslum við fyrsta áfanga endurbóta á jarðhæð Ekrunnar sem hýsir dagþjónustu og félagsstarf aldraðra lagðar fram til kynningar. Í fyrsta áfanga er stefnt að því að gera endurbætur á Ekrusalnum, skipta um gólfefni, loftaklæðningu og bæta hljóðvist í salnum ásamt því að setja upp nýjan margmiðlunar og fjarfundarbúnað. Eldhúsið verður stækkað, innréttingar og tæki endurnýjuð og þá verður skipt um gólfefni og loftaklæðningu í anddyri hússins. Þá verða kynntar fyrstu hugmyndir að hönnun útisvæðis við Ekrusalinn.
Farið yfir hvaða verkþættir falla undir fyrsta áfanga framkvæmda á jarðhæð Ekrunnar. Einnig skoðaðar fyrstu hugmyndir að hönnun sólskála og garðs.

Velferðarnefnd fagnar því að framkvæmdir séu að fara af stað í Ekrunni.
5.
Heilsuþjálfun í Hornafirði - Spretthópur um heilsueflingu eldri borgara
Málsnúmer 202601129
Ein af aðgerðum ársins 2026 í framtíðarsýn um málefni aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði er að setja á fót spretthóp sem skal framkvæma úttekt á úrræðum heilsueflingar eldri borgara í sveitarfélaginu. Starfsmenn hafa unnið að því að gera drög að vinnu spretthópsins og leggja nú fram minnisblað þess efnis.
Minnisblað um fyrirhugaða vinnu spretthóps um heilsueflingu eldri borgara í Sveitarfélaginu Hornafirði lagt fram til kynningar. Málinu vísað áfram til frekari umræðu í bæjarráði.
6.
Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202510042
Sviðsstjóri fer yfir lykiltölur úr starfsemi barnaverndarþjónustu 2025 ásamt samanburði síðustu 5 ára.
Lagt fram til kynningar. Málinu vísað áfram til kynningar í bæjarráði.
7.
Umsögn um 312.mál alþingis- Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)
Málsnúmer 202601156
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 312. mál - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.).
Starfsmanni falið að vinna að umsögn í samræmi við umræðu á fundinum. Vísað til frekari umræðu í bæjarráði.
8.
Umsögn um mál 305 frá velferðarnefnd alþingis- Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn
Málsnúmer 202601158
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 305. mál - Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn
Velferðarnefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við frumvarpið.