Fara í efni

Velferðarnefnd

51. fundur
11. maí 2026 kl. 16:00 - 18:00
í Miðgarði
Nefndarmenn
Sveinbjörg Jónsdóttir varaformaður
Gunnar Stígur Reynisson aðalmaður
Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir formaður
Ingólfur Guðni Einarsson aðalmaður
Theódór Árni Stefánsson Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Einar Aron Fjalarsson Fossberg embættismaður
Fundargerð ritaði:
Einar Aron Fjalarsson Fossberg Yfirfélagsráðgafi velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Fjölmenningarráð - 28
Málsnúmer 2603013F
Farið yfir fundargerð 28. fundar fjölmenningarráðs sem fram fór 14.4.2026. Anna Birna verkefnastjóri fjölmenningar, inngildingar og jafnréttis mætir á fundinn og gerir grein fyrir fundargerðinni.
Anna Birna gerði grein fyrir fundargerð 28. fundar fjölmenningaráðs. Einnig var rætt um fjölmenningaráð en í því er nú einn fulltrúi sem ekki talar íslensku en fundirnir eru ritaðir á íslensku. Eftir kosningar verða valdir nýjir fulltrúar.
2.
Notendaráð um málefni fatlaðs fólks - 3
Málsnúmer 2603018F
Fundargerð 3. fundar notendaráðs fatlaðs fólks sem fram fór 17.4.2026 lögð fram til kynningar. Sigrún Bessý mætir á fundinn og gerir grein fyrir fundargerðinni.
Velferðarnefnd þakkar Sigrúnu Bessý fyrir yfirferðina.
3.
Heilsuþjálfun í Hornafirði - Spretthópur um heilsueflingu eldri borgara
Málsnúmer 202601129
Sigrún Bessý starfsmaður spretthópsins mætir á fundinn og gerir grein fyrir því hver staða verkefnisins er og hvernig því mun vinda fram.
Búið er að mynda spretthóp sem hefur fundað einu sinni og áætlar að hittast aftur í næstu viku. Stefnt er að því að halda opnar vinnustofur og nefndin hvetur öll til þess að taka þátt. Velferðarnefnd þakkar Sigrúnu Bessý fyrir yfirferðina.
4.
Úttekt á stuðnings- og virkniþjónustu 2026
Málsnúmer 202601074
Úttekt á starfsemi stuðnings- og virkniþjónustu hefur verið í vinnslu síðastliðnar vikur. Vinnan er langt komin og er áætlað að lokaskýrslan verði tilbúin í byrjun júní. Sviðsstjóri gerir grein fyrir ferlinu til þessa og fyrir frumniðurstöðum.
Sigrún Bessý gerði grein fyrir minnisblaði um úttekt á stuðnings- og virkniþjónustu þar sem fjallað var um frumniðurstöður úttektar. Velferðarnefnd lýsir yfir ánægju með þær niðurstöður sem komu fram.
5.
Drif - Úrræði til félagslegrar valdefningar barna og ungmenna
Málsnúmer 202406069
Óskað var eftir því að fá kynningu á starfsemi úrræðisins Drif sem rekið er á vegum velferðarsviðs. Eins var óskað eftir því að fá kynningu á því hvernig er verið að mæta ungmennum með stuðningsþarfir þegar kemur að frístund og félagsstarfi. Sædís Ösp umsjónarfélagsráðgjafi mætir á fundinn og gerir grein fyrir starfseminni.
Velferðarsvið réði í byrjun hausts nýjan starfsmann Drifs. Vel hefur gengið með þá hópa sem falla undir starfsemi úrræðisins á grunnskólastigi. Starfsemi þeirra fer fram í Selinu og hittist þrisvar sinnum í viku.

Þá var farið yfir frístunda- og félagsstarf 16 ára og eldri. Verkefnið er tilraunaverkefni og er í sífelldri þróun. Vel gekk með úrræðið fyrstu mánuðina en fór að fjara undan mætingu eftir því sem leið á önnina. Hópurinn hittist tvisvar í viku.

Fyrirspurn barst í upphafi árs hvort hægt væri að bjóða upp á sambærilegt úrræði fyrir yngri börn, 1.-6. bekk, og hafa þau verið að hittast einu sinni í viku.
6.
Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Málsnúmer 202304055
Farið yfir stöðu mála á verkefnum tengdum samningi um samræmda móttöku flóttafólks. Sædís Ösp umsjónarfélagsráðgjafi mætir á fundinn.
Sædís Ösp gerir grein fyrir stöðu verkefna sem falla undir samning um samræmda móttöku flóttafólks. Sædísi Ösp er þakkað fyrir greinargóða yfirferð.
7.
Fjárhagsaðstoð 2026
Málsnúmer 202601085
Árlega er farið ítarlega yfir reglur um fjárhagsaðstoð hjá Sveitarfélaginu Hornafirði og þær rýndar með það fyrir augum að uppfæra þær í takt við breytingar í löggjöfinni og aðlaga þær að þjónustunni hverju sinni. Breytingarnar eru að hluta til tæknilegar vegna breytinga á orðalagi, framkvæmd og greiðslukerfum hjá öðrum stofnunum, einkum Vinnumálastofnun og Tryggingastofnun. Þá eru einnig gerðar efnislegar breytingar á framkvæmd fjárhagsaðstoðar t.d. hvað varðar greiðslu fjárhagsaðstoðar aftur í tímann og skýrari ákvæði um umsækjendur sem eru í áfengis- eða vímuefnaneyslu.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemdir og vísar málinu til frekari umræðu í bæjarráði.
8.
Verklagsreglur um eftirlit með fósturráðstöfunum
Málsnúmer 202604086
Lagðar eru fram til kynningar verklagsreglur Barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar (BFSH) varðandi eftirlit með börnum í fóstri. Verklagsreglur um eftirlit með fósturráðstöfunum byggja á barnaverndarlögum nr. 80/2002, reglugerð um fóstur nr. 804/2004 og handbók um vinnslu barnaverndarmála frá Barna- og fjölskyldustofu. Einnig er byggt á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna. Verklagsreglurnar taka mið af réttindum barns, faglegum viðmiðum og þeirri meginreglu að hagsmunir barns skuli ávallt hafðir að leiðarljósi. Þær gilda um eftirlit með öllum börnum sem BFSH hefur ráðstafað í fóstur, óháð því hvar fósturheimili er staðsett. Þær taka til undirbúnings eftirlits, framkvæmdar heimsókna, samtals við barn, skráningar, faglegs mats, viðbragða við áhyggjum og endurskoðunar fósturráðstöfunar þegar þess gerist þörf.
Velferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við verklagsreglurnar og fagnar gerð þessara mikilvægu reglna í málaflokknum.

Nefndin þakkar Skúla Ingibergi fyrir góða og faglega yfirferð og alla þá mikilvægu og óeigingjörnu vinnu sem hann hefur lagt á sig í þágu velferðarsviðs og einstaka umhyggju í garð undirmanna sinna.