Fara í efni

Fjölmenningarráð

Fjölmenningarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar heyrir undir velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Starfsmaður ráðsins er verkefnastjóri fjölmenningar.

Megin hlutverk fjölmenningarráðs er að móta stefnu í fjölmenningarmálum sveitarfélagsins og fylgjast með framkvæmd laga og reglugerða er snerta starfssvið ráðsins. Ráðið skal stuðla að hvers konar upplýsingagjöf og samstarfi Sveitarfélagsins Hornafjarðar við hagsmunasamtök hópsins, vinna að stefnumótun og gera tillögur til bæjarráðs sem varðar verksvið þess. Megin markmið ráðsins er að koma málefnum innflytjenda í sveitarfélaginu á framfæri, skapa vettvang til samskipta og stuðla að fjölmenningarlegu samfélagi.

Í fjölmenningarráði sitja:

  • Nejra Mesetovic formaður (B)

  • Goran Basarak (D)

  • Bartek Andresson Kass

  • Matsupha Brynjulfsson

  • Maciej Rózanski

  • Nikolina Tintor (K)
  • Pedro Ribeiro (B)