Fara í efni

Íbúaráð

Íbúaráð sveitarfélagsins eru þrjú. Í hverju íbúðaráði skulu sitja þrír fulltrúar kosnir af íbúum ásamt tveimur varamönnum. Kjörtímabil íbúaráðs er hið sama og bæjarstjórnar. Starfsmaður íbúaráðsins er stjórnsýslu -og upplýsingafulltrúi.

Íbúaráð skulu vinna að auknu íbúalýðræði innan sveitarfélagsins og eru mikilvægur samráðsvettvangur innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Starfsmaður íbúaráðs sér um að koma fundargerðum til stjórnsýslu sveitarfélagsins og leggja þær fyrir bæjarráð.

Nes og Lón 

Í íbúaráði fyrir Nes og Lón sitja:

  • Þórhalla Magnúsdóttir formaður 

  • Ásta Steinunn Eiríksdóttir 

  • Ásthildur Gísladóttir 

Varamaður 

  • Herdís Ingólfsdóttir Waage

Suðursveit og Mýrar 

Í íbúaráði fyrir Suðursveit og Mýrar sitja:

  • Bjarni Haukur Bjarnason formaður

  • Ari Hannesson varaformaður

  • Erla Rún Guðmundsdóttir 

Öræfi

Í íbúaráði fyrir Öræfi sitja:

  • Jón Ágúst Guðjónsson formaður

  • Matthildur Þorsteinsdóttir  

  • Madalin I. Huminiuc 

  • Sunneva B. Helgadóttir
  • Jolanta Bien
  • Laurent Jégu