Fara í efni

Notendaráð um málefni fatlaðs fólks

Notendaráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar um málefni fatlaðs fólks heyrir undir velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Forstöðumaður stuðnings- og virkniþjónustu er starfsmaður hópsins og ritar jafnframt fundargerðir hans.

Hlutverk

Hlutverk notendaráðs um málefni fatlaðs fólks er að vera formlegur vettvangur samráðs og samstarfs við sveitarstjórn um hagsmuni fatlaðs fólks þar sem fjallað er um þjónustu við fatlað fólk, framkvæmd hennar og þróun. Notendaráðið stuðlar þannig að skoðanaskiptum og miðlun upplýsinga milli fatlaðs fólks og stjórnvalda um stefnu og framkvæmd í málefnum sem varða fatlað fólk og er þeim og fastanefndum þeirra til ráðgjafar í þeim efnum.

Í notendaráði um málefni fatlaðs fólks sitja: 

  • Gunnar Páll Halldórsson (K) 

  • Tinna Rut Sigurðardóttir (D) 

  • Kolbrún Rós Björgvinsdóttir (B)

  • Kolbrún Reynisdóttir

  • Guðjón Örn Magnússon (K)
  • Hjördís Edda Olgeirsdóttir (D)
  • Gunnar Ásgeirsson (B)