Ungmennaráð
Ungmennaráð Sveitarfélags Hornafjarðar heyrir undir fræðslu- og tómstundanefnd. Tómstundafulltrúi er starfsmaður ungmennaráðs.
Hlutverk
Ungmennaráð Hornafjarðar skal gæta þess að leita eftir sem flestum sjónarmiðum ungs fólks í störfum sínum þannig að ályktanir þess og skoðanir endurspegli sem best almennan vilja ungs fólks í sveitarfélaginu. Ungmennaráð er skipað sjö fulltrúum á aldrinum 13–24 ára og þremur til vara. Fræðslu- og tómstundanefnd skipar í ráðið að fengnum tillögum frá Grunnskóla Hornafjarðar, Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu, Ungmennafélaginu Sindra og Þrykkjuráði.
Í ungmennaráði sitja:
Adam Bjarni Jónsson
Ari Jökull Óskarsson
Björg Kristjánsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Kristján Reynir Ívarsson
Sindri Sigurjón Einarsson
Sunna Dís Birgisdóttir
Selma Ýr Ívarsdóttir formaður