Íþróttamannvirki
Sveitarfélagið Hornafjörður býður upp á góða og fjölbreytta aðstöðu til íþróttaiðkunar fyrir alla aldurshópa. Í sveitarfélaginu eru fjölbreytt íþróttamannvirki, þar á meðal íþróttahús, knatthús, íþróttavellir og glæsileg sundlaug, sem skapa sterkan grunn fyrir öflugt íþrótta- og tómstundastarf.