Fara í efni

Leikskólinn Sjónarhóll

Leikskólinn Sjónarhóll stendur við Kirkjubraut 47 en aðkoma foreldra og barna er frá Víkurbraut 24 á Höfn.

Leikskólinn Sjónarhóll var formlega sameinaður þann 1. apríl 2017 úr leikskólunum Lönguhólum og Krakkakoti.

Á Sjónarhóli er starfað eftir menntastefnu sveitarfélagsins og aðalnámskrá leikskóla. Leikskólinn er umhverfisvænn þar er markviss flokkun og endurvinnsla.

Umsókn um pláss á leikskóla fer í gegnum íbúagátt  sveitarfélagsins.

Athugið að eftirfarandi fylgiskjöl þurfa að fylgja umsókn.

  • Tilkynning um lögheimili - ef nýtt lögheimili hefur ekki verið skrá í þjóðskrá
  • Staðfesting á fyrirhuguðum flutningi í bæinn (t.d. frá fasteignasala eða leigusala)

Gjaldskrá leikskóla í Sveitarfélaginu Hornafirði 1.8. 2025 - 31.7. 2026

Fjöldi klst. á dag Tími Almenn gjöld Gjöld forgangshópa

4

mánaðargjald

13.223 kr.

9.258 kr.

5

mánaðargjald

16.529 kr.

11.572 kr.

6

mánaðargjald

19.835 kr.

13.886 kr.

7

mánaðargjald

23.141 kr.

16.201 kr.

8

mánaðargjald

26.447 kr.

18.515 kr.

15 mín gjald

918 kr.

918 kr.

60 mín gjald

3.306 kr.

2.314 kr.

Veittur er systkinaafsláttur; 50% með öðru barni og 100% með þriðja barni. Systkinaafsláttur er tengdur á milli skólastiga þannig að foreldrar sem eiga börn í Kátakoti fá systkinaafslátt þar.

 

Fæðisgjöld leikskóla á mánuði 2025-2026

Morgunmatur

2.773 kr.

Hádegisverður

7.027 kr.

Síðdegishressing

2.773 kr.

Samtals

12.573 kr.

Skráningardagar
Verð fyrir hvern skráningardag með fullu fæði er kr. 1.837

Boðið er upp á 20 skráningardaga í leikskólanum á hverju skólaári sem foreldrar greiða sérstaklega fyrir. Foreldrar hafa frjálst val um hvort og hversu marga daga þeir nýta en þurfa að vera búnir að láta vita með 6-8 vikna fyrirvara hvort þeir ætla að nýta dagana.

 

Skráningardagar skólaárið 2025-2026 eru;

  • 24., 27. og 28. október (3 dagar)
  • 22. desember til og með 2. janúar (5 dagar)
  • 23. og 24. febrúar (2 dagar)
  • 30. og 31. mars og 1. apríl (3 dagar í dymbilviku)
  • 2. – 10. júlí (7 dagar)

Gjaldskrá fyrir leikskólavist fylgir vísitölum framfærslukostnaðar og neysluverðs og er uppreiknuð 1. ágúst ár hvert.

Leikskólastjóri

Maríanna Jónsdóttir
Leikskólastjóri Sjónarhóll