Fara í efni

Tónskóli Austur-Skaftafellssýslu

Hafnarbraut 17, 780 Höfn

Í Tónskóla A-Skaft.  eru um 60 nemendur í einkatímum. Mikið er lagt upp úr samspilshópum og eru starfandi tvær lúðrasveitir og ýmsir smærri hópar. Skólinn er í rúmgóðu nýuppgerðu húsnæði með rúmlega 100 manna tónleikarsal. 

Almenn stefna

Skólinn starfar eftir aðalnámsskrá tónlistarskóla (2000). Stefnt er að því að allir nemendur taki áfangapróf samkvæmt fagnámsskrám.

Einkatímar

Nemendur fá 1 klst. á viku í einkatíma sem skiptist eftir þörfum (15–30 mín. x 2–4 sinnum). Á fyrsta ári er kennt tvisvar í viku í 30 mín. Nemandinn byrjar í tónfræði á 2.–3. ári og einnig byrja nemendur sem eru á hljómsveitarhljóðfærum í markvissum hljómsveitaræfingum.

Miðnám

Kennslan getur breyst í 1x60 mín. einkatíma á viku, eftir mati kennara.

Framkomur

Nemendur koma reglulega fram á tónleikum og öðrum viðburðum. Undirbúningur og æfingar heima eru forsenda framfara.

Hljóðfæranám
Byggist á daglegri, reglubundinni heimaæfingu. Kennt er á: Píanó, hljómborð, harmóniku, klarínett, þverflautu, saxófón, trompet, horn, baritone, básúnu, gítar, bassa, trommur

Skólinn lánar hljóðfæri í allt að 3 ár án gjalds, að því loknu er greidd leiga.

Forskóli

Skyldunám fyrir 7 ára börn í 2. bekk Grunnskóla Hornafjarðar. Kennslan fer fram í skólatíma, að kostnaðarlausu.

Markmið: Undirbúa nemendur fyrir hljóðfæranám.
Nemendur koma fram á tónleikum, og lögð er áhersla á samstarf heimila og skóla. Foreldrar eru hvattir til að styðja við námið heima.

Tónfræðinám

Kennt í 5–12 manna hópum, 1 klst. á viku, eftir 1–3 ára hljóðfæranám eða frá 6. bekk.
Kennsla felur í sér nótnaskrift, tónheyrn, takt, tónlistarsögu og hlustun. Nemendur taka próf í lok náms.

Tónfræði er nauðsynlegur hluti hljóðfæranáms og próf í henni er forsenda fyrir því að ljúka hljóðfæraprófi.

Samspil

Samspil er mikilvægur þáttur í námi. Í boði eru hópar allt skólaárið (t.d. lúðrasveit) og tímabundnir hópar (t.d. poppsamspil og samleikur). Nemendur fá einnig þjálfun með undirleik.

Sækja um skólavist

Umsókn um skólavist.
Nú tökum við inn nemendur sem byrja í 3. bekk.
Nemendur geta fengið lánuð, flest hljóðfæri, frá Tónskólanum sér að kostnaðarlausu í 3 ár. Smelltu hér að neðan til að sækja um

Sækja um skólavist

 

Skólastjóri

Jóhann Moravék
Skólastjóri Tónskóla A-Skaft.