Fara í efni

Sorphirða og endurvinnsla

Sveitarfélagið Hornafjörður leggur mikla áherslu á að úrgangur sé flokkaður svo honum megi koma til endurvinnslu í stað urðunar. Flokkun úrgangs er mikilvægur þáttur í að vernda umhverfið og ætti að vera sjálfsagður hluti af rekstri heimila og fyrirtækja. Það borgar sig að flokka því úrgangur er auðlind!

 Sorp frá heimilum er flokkað í fjóra flokka:

  • Pappír og pappa
  • Plast
  • Matarleifar (Eingöngu í þéttbýli)
  • Blandaður úrgangur

Regluleg sorphirða er til allra heimila í sveitarfélaginu, skipulag sorphirðingar má sjá í sorphirðudagatalinu en Funi ehf. annast sorphirðuna.

Hringrás rekur söfnunarstöð fyrir úrgang við Sæbraut 1 á Höfn og er opnunartíminn eftirfarandi:

  • Mánudaga til fimmtudaga: 13:00-17:00
  • Laugardaga frá 10:00-14:00
  • Lokað föstudaga og sunnudaga.

Á svæðinu sér Körfuknattleiksdeild Sindra um flöskumóttöku og er opnunartími hennar:

  • Þriðjudaga 15:30 - 17:00
  • Laugardaga 11:00 - 13:00

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Sindra.

Utan opnunartíma söfnunarstöðvar er hægt að skila endurvinnanlegum úrgangi í sérstakan flokkunarbar utan við stöðina.

Þar má skila:

  • bylgjupappa
  • sléttum pappa
  • pappír og dagblöðum
  • plastumbúðum
  • gleri
  • málmumbúðum

Mikilvægt er að ganga vel um flokkunarbarinn, setja aðeins hreinar umbúðir í endurvinnslu og flokka rétt. 

Það er óheimilt að skilja úrgang eftir utan við flokkunarbarinn eða móttökustöðina!

Tengiliður sorpmála

Xiaoling Yu
Umhverfisfulltrúi