Fara í efni

Fatlað fólk

Sveitarfélagið Hornafjörður hefur það að markmiði sínu við veitingu þjónustu að fatlað fólk fái nauðsynlegan stuðning til þess að það geti notið fullra mannréttinda til jafns við aðra og skapa því skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum.

 Við framkvæmd þjónustu við fatlað fólk skal virðing borin fyrir mannlegri reisn þess, sjálfræði og sjálfstæði.

Þjónustan heim

Sveitarfélagið Hornafjörður í samstarfi við HSU hefur samþætt heimaþjónustu og heimahjúkrun undir heitinu þjónustan heim. 

Markmið þjónustunnar

  • Að styðja notendur sem þurfa aðstoð vegna aðstæðna eða félagslegrar einangrunar.
  • Að efla sjálfstæði og sjálfsbjargargetu notenda.
  • Að virða sjálfsákvörðunarrétt hvers og eins.
  • Að gera fólki kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður, eins lengi og hægt er.
  • Að sníða þjónustuna að einstaklingsbundnum þörfum.

Sótt er um úrræði Þjónustunnar heim rafrænt á íbúagátt sveitarfélagsins.  Frekari upplýsingar um úrræði Þjónustunnar heim veita starfsmenn stuðning- og virkniþjónustu í síma 470-8000 eða á netfanginu velferd@hornafjordur.is

Þjónustan heim felur í sér eftirfarandi þjónustuþætti

Dagdvöl og félagsstarf fer fram í Miðgarði – Þjónustumiðstöð að Víkurbraut 24.
Þar fer fram stuðningur við virkni af ýmsu tagi og er matarþjónusta alla virka daga og á sunnudögum

*Hér vantar meira info, finnst mér TÓ

Boðið er upp á matarþjónustu í Miðgarði – Þjónustumiðstöð að Víkurbraut 24 samhliða dagvöl og félagsstarfi fatlaðra. Einnig er hægt að fá heimsendan mat ef viðkomandi kýs það frekar. Gjaldskrá er í samræmi við reglur sveitarfélagsins um félagslega heimaþjónustu og uppfærist um hver áramót.

*Tengill á reglur og gjaldskrá

Markmið heimaþjónustu er að efla notandann til sjálfsbjargar og sjálfræðis og gera honum kleift að búa sem lengst á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður.
Við framkvæmd og skipulagningu þjónustunnar skal lögð áhersla á að sníða hana að þörfum notandans og virða sjálfsákvörðunarrétt hans.

*Vantar upplýsingar um hvernig hægt er að fá þjónustuna TÓ