Opið er alla virka daga frá kl. 8:00-12:00 og 13:00-15:00.
Netfang: velferd@hornafjordur.is
Sími: 470 8000
Neyðarnúmer barnaverndarmála er 112

Þeir sem eiga lögheimili á Hornafirði eiga rétt á að leita aðstoðar velferðarsviðs samkvæmt gildandi reglum. Starfsfólk velferðarsviðs er bundið trúnaði um málefni þeirra sem til hennar leita. Þjónustan fer fram í Miðgarði þjónustumiðstöð, í Ekrunni og á heimilum notenda.
Þjónusta velferðarsviðs er samkvæmt eftirfarandi lögum:
Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr.40/1991
Lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr.38/2018
Lög um málefni aldraðra nr.125/1999
Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr.86/2021
Lög um barnavernd nr.80/2002
Lög um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna nr.10/2008
Velferðarnefnd fer með stjórn og skipulag velferðarsviðs í umboði bæjarstjórnar, en framkvæmd þjónustunnar er í höndum starfsmanna. Áhersla er lögð á náið samstarf milli velferðarsviðs, heilsugæslu og þeirra sem vinna að fræðslumálum.
Opið er alla virka daga frá kl. 8:00-12:00 og 13:00-15:00.
Netfang: velferd@hornafjordur.is
Sími: 470 8000
Neyðarnúmer barnaverndarmála er 112
Sviðstjóri Velferðarsviðs
