Dagskrá hátíðarinnar er í vinnslu og verður auglýst síðar
Humarhátíðarnefnd 2026 hefur tekið til starfa og er undirbúningurinn kominn á fullt. Við erum metnaðarfull nefnd og stefnum á glæsilega hátíð!
Ertu í hljómsveit eða upprennandi söngstjarna? Sendu okkur tölvupóst og við reynum að búa til pláss í dagskránni.
Ertu með hugmynd að viðburði sem þú telur að eigi erindi á hátíðina?
Sendu okkur tölvupóst, við gætum kannski aðstoðað þig við að fullvinna hugmyndina og fundið henni pláss í dagskránni!
Viltu skipuleggja loppumarkað, pop-up leikvöll eða halda utan um götuskreytingarnar?
Sendu okkur tölvupóst! Netfangið er:humarhatidarnefnd@gmail.com.
Síðast en ekki síst þá vantar okkur fleiri hendur í humarhátíðarnefndina, margar hendur vinna létt verk!
Endilega hafið samband. Það er í alvöru ótrúlega gaman að skipuleggja bæjarhátíð!
