Hjördís Skírnisdóttir, dóttir Margotar Gamm, segir frá sköpun og lífi Margotar og leiðir gesti um yfirlitssýningu á listhandverki hennar í Gömlubúð
Margot Gamm (1931–2007) auðgaði menningarlíf Hornafjarðar með listfengi sínu við sköpun verka sem hún vann með margvíslegum aðferðum, svo og við myndmenntakennslu, og hafði sterk áhrif á fegurðarskyn og sköpunarfærni heimafólks.
Þessari fyrstu yfirlitssýningu á verkum Margotar er ætlað að veita innsýn inn í fjölbreytt og vandað handverk hennar, listgripi sem spanna tímabilið frá því hugmyndaauðgi hennar og handverksfærni fann sér farvegi í gerð litríkra muna, til þeirra sem hún skapaði fram til síðasta dags.
Listmunirnir á sýningunni eru allir í eigu afkomenda hennar, barna og barnabarna, og er fjölskyldunni allri þakkað fyrir verkalánið og stuðning við að varpa upp mynd af listfengi þessarar einstöku konu.
Öll eru velkomin og aðgangur er ókeypis.
