Fara í efni

Tónleikar Loo Sim ying

Dags
22. maí
Kl.
18:00 - 19:00
Staðsetning
Gamlabúð
Loo Sim Ying er klassískur gítarleikari sem spilar í Gömlubúð.
Deildu

Loo Sim Ying útskrifaðist frá Malaysia Institute of Arts. Hann hefur hlotið verðlaun á Malaysia Youth Music Festival, þar sem hann vann fyrstu verðlaun árið 2008 og 2009, og gullverðlaun árið 2011.

Hann hefur lokið Associate (ATCL) og Licentiate (LTCL) diplómum í tónlistarflutningi frá Trinity College London og hlaut jafnframt Trinity College London Award of Excellence fyrir árangur sinn í tónlistarnámi.

Sem verðlaunahafi hefur hann komið fram á Trinity Guildhall Awards Concert og leikið á Bel Canto tónleikaröðinni sem Classical Music Society of Selangor/Kuala Lumpur stóð fyrir, á 8. JB Arts Festival, hjá Alliance Française de Singapour, library@esplanade og The Arts House.

Hann hefur tekið þátt í meistaranámskeiðum með alþjóðlega þekktum gítarleikurum og komið fram í Indónesíu, Singapúr og á Íslandi.

Tónleikarnir eru föstudaginn 22. maí og hefjast klukkan 18:00 og standa til kl. 19:00.

Viðburðurinn á facebook