Húsið er skráð þremur matshlutum sem eru samtals 155,9 m2. Lóðarstærðin er 11.550 m2 samkvæmt teikningu.
Með auglýsingu þessari vill sveitarfélagið lýsa eftir aðilum sem áhuga kunna að hafa á uppbyggingu á lóðinni og uppfylla þá skilmála sem að neðan greinir. Ekki skal litið svo á að röðun þeirra gefi til kynna vægi einstakra skilmála innbyrðis:
- hvernig starfsemi viðkomandi sér fyrir sér á lóðinni,
- hvernig viðkomandi hyggst nýta lóð og hús,
- hvernig tillagan hefur jákvæð áhrif á samfélag, atvinnu og efnahag í sveitarfélaginu,
- hvernig viðkomandi sér fyrir sér skipulag, hönnun og uppbyggingu á lóðinni,
- hvað viðkomandi aðili vill greiða háa leigu fyrir notkun á lóð og húsi og til hversu langs tíma. Sveitarfélagið mun í ljósi samkeppnissjónarmiða leitast við að fá markaðsverð fyrir leigu á lóðinni og að leigutími sé ekki til lengri tíma en til 7 ára,
- reynsla og þekking viðkomandi á þeirri starfsemi sem tilgreind er í tillögu,
- litið verður til fjárhagslegrar getu til að koma hugmyndinni í verk og fylgja henni eftir,
- hversu ný og sérstæð tillagan er.
Samkvæmt Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 er Stekkaklettur á svæði sem skilgreint er sem samfélagsþjónusta. Ekkert deiliskipulag er til fyrir lóðina. Sveitarfélagið er reiðubúið að skoða breytingar á aðalskipulaginu til að skapa svigrúm fyrir breytta nýtingu lóðar og húsa og koma að nýju deiliskipulagi á grundvelli þeirrar tillögu sem verður fyrir valinu.
Upplýsingar veitir Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri. Áhugasamir aðilar vinsamlegast sendið inn tillögu að nýtingu á Stekkakletti til bæjarráðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn í Hornafirði, eða á netfangið afgreidsla@hornafjordur.is eigi síðar en 30. október nk.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
