Fara í efni
05.05.2026

Fjölmenningarráð hlýtur styrk frá Þjóðminjasafni og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti

Deildu

Sótti fjölmenningarráð sveitarfélagsins um styrk fyrir samvinnuverkefni með FAS og Sundlaug Hafnar, en var hugmyndin að tengja viðburðinn frekar við fjölmenningarbíó, sem fara aftur af stað í haust.

Bárust 46 umsóknir og fengu 22 verkefni styrkinn að þessu sinni, meðal annars þetta verkefni. Stefnt er á að halda viðburðinn í september, og verður þá sýnd íslensk kvikmynd meðan gestir geta spókað sig ofan í sundlauginni og heitu pottunum. Einnig er stefnt á að bjóða upp á þjóðlegt snarl áður en fólk heldur ofan í.

Frekari upplýsingar munu birtast þegar nær dregur.

Fyrir hönd fjölmenningarráðs,

Anna Birna Elvarsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar-, inngildingar- og jafnréttismála.