Efnið verður nýtt við að móta tillögur að markmiðum og skipulagsákvæðum í nýju aðalskipulagi. Hornafjarðarbær þakkar þátttakendum fyrir þeirra mikilvæga framlag og hvetur íbúa alls sveitarfélagsins til að fylgjast með framgangi endurskoðunar aðalskipulags á aðalskipulagsvefnum. Senda má inn hugmyndir og sjónarmið hvenær sem er á meðan nýtt aðalskipulag er í mótun. Þær sendist á netfangið adalskipulag@hornafjordur.is.



