Fara í efni
08.12.2023

Jólin eru rétt handan við hornið

Deildu
Eins og margir hafa tekið eftir er ekki búið að setja skraut á ljósastaura í bænum.
Í byrjun september var lögð inn pöntun fyrir nýju skrauti á alla ljósastaura og er von á því í til okkar í næstu viku, líklega 13. desember.
Um leið og nýja skrautið er komið til Áhaldahússins þá fara starfsmenn í að hengja það upp! 

Við viljum öll hafa bæinn okkar fallegan og vel skreyttan yfir hátíðirnar og verður engin undantekning á því þetta árið.
Hver veit nema að það fái að vera lengur uppi en seinustu ár.


Með bestu jólakveðju,
Sigfinnur Mar
Bæjarverkstjóri