Hægt er að tilnefna alla sem koma að skóla- eða menntunarstarfi með einhverjum hætti geta hlotið verðlaunin, t.a.m. leikskólar, grunnskólar, framhaldssskólar, símenntunarstöðvar, háskólastofnanir, kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélag/skólanefndir og foreldrafélög.
Tilnefningar skulu hafa borist til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56, Selfossi, fyrir miðnætti miðvikudaginn 6. janúar n.k.
Tilnefningarnar sendist á netfangið: menntaverdlaun@sudurland.is.
Verðlaunin verða nú í ár veitt í þrettánda sinn. Veitt verða peningarverðlaun sem nýtast til áframhaldandi menntunarstarfs. Jafnframt fylgir verðlaununum formleg viðurkenning. Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tenglsum við hátíðarfund Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands n.k. janúar.
