Starfs- og ábyrgðarsvið
- Sálfræðilegar athuganir, greiningar, meðferð og ráðgjöf.
- Ráðgjöf til foreldra og starfsfólks leik- og grunnskóla.
- Þverfaglegt starf með skólum, barnavernd, félags- og heilbrigðisþjónustu o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur.
- Sálfræðimenntun og réttindi til að starfa sem sálfræðingur.
- Þekking á þroska og þroskafrávikum barna.
- Reynsla af sálfræðilegri greiningu, meðferð og ráðgjöf.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Skipulagshæfileikar, sjálfstæði og frumkvæði.
Laun eru skv. kjarasamningi Sálfræðingafélags Íslands og launanefndar sveitarfélaga.
Umsækjendur skili inn umsóknum til Ragnhildar Jónsdóttur fræðslustjóra á netfangið ragnhildur@hornafjordur.is sem einnig veitir upplýsingar um starfið í gegnum tölvupóst eða síma 470-8000. Með umsókn þarf að fylgja ferilsskrá um fyrri störf og menntun ásamt kynningarbréfi.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí n.k.
