Ásamt Birni Inga voru viðstödd undirritunina var bæjarráð, Sæmundur Helgasson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Ásgerður K. Gylfadóttir en hún er einnig hjúkrunarstjóri og Matthildur Ásmundadóttir framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði.
Áætlað er að byggja 30 hjúkrunarrými við Skjólgarð. Nú hefst hönnun á byggingunni og í framhaldinu mun byggingin fara í útboð áætlað er að nýtt hjúkrúnarheimili verði tekið í notkun síðla árs 2021.

Á Höfn í Hornafirði eru núna 24 hjúkrunarrými á heimilinu Skjólgarði. Húsnæði Skjólgarðs uppfyllir ekki lengur kröfur sem gerðar eru til húsnæðis og aðbúnaðar á hjúkrunarheimilum í dag.
Nýja hjúkunarheimilið verður reist á lóð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Víkurbraut 31. Velferðarráðuneytið og sveitarfélagið Hornafjörður munu standa saman að byggingu hússins og breytingu sem gerð verður á hluta eldra húsnæðis í tengslum við framkvæmdina.
Aðdragandi þessa samkomulags hefur verið nokkuð langur og ánægjan því mikil að þessum áfanga skuli nú náð. Á fyrri stigum var gert ráð fyrir að rýmin yrðu 24, en nú er niðurstaðan sú að rýmin verða 30 og er það í samræmi við mat ráðuneytisins á þörf fyrir fjölda hjúkrunarrýma á svæðinu á næstu árum.
Áætlaður kostnaður nemur um einum milljarði króna og skiptist þannig að ríkissjóður fjármagnar 85% framkvæmdanna á móti 15% sveitarfélagsins.
