Er styrkurinn veittur í gegnum verkefnið European City Facility. Hornafjörður er þriðja sveitarfélagið sem valið er til að hljóta EUCF styrk en sveitarfélagið stefnir á kolefnishlutlausan rekstur fyrir árið 2030 og miðar umhverfis- og loftslagsstoð aðalskipulags að því markmiði.
Verkefnið sem Hornafjörður fékk styrk til að sinna snýst um að auka orkunýtni sundlaugarinnar á svæðinu þar sem hún er stór orkunotandi. Sveitarfélagið ætlar að ráðast í úttektir á orkunotkun og hagkvæmniathugunum sem leiða af sér að kennsl verða borin á tækifæri til umbóta, draga úr kostnaði og bæta umhverfið. Allur lærdómur sem af verkefninu hlýst mun skila sér í leiðbeiningum sem verða aðgengilegar öðrum sveitarfélögum sem vilja ráðast í svipaðar aðgerðir.
