Greitt er árlegt rotþróargjald fyrir íbúðarhús, sumarhús og frístundahús sem eru með eigin fráveitu eða sem eru ekki tengd fráveitukerfi sveitarfélagsins, sbr. 5. mgr. 9. gr. samþykktar um fráveitu í Sveitarfélaginu Hornafirði nr. 669/2016.
Til að tryggja rétta þjónustu og innheimtu gjaldsins eru fasteignaeigendur sem falla undir þjónustuna beðnir um að yfirfara skrá yfir rotþrær á https://www.hornafjordur.is/thjonusta/umhverfid/skraning-rotthroa/ og ganga úr skugga um að upplýsingar séu réttar.
Vinsamlegast athugið sérstaklega:
- Stærð rotþróar – ef upplýsingar vantar eða eru rangar.
- Sameiginlegar rotþrær – ef rotþró er sameiginleg fyrir fleiri en eina fasteign.
- Vantar fasteign á listann – ef rotþró er ekki skráð.
Ef gera þarf breytingar er vinsamlegast haft samband við sveitarfélagið fyrir lok apríl.
Hafa má samband við sveitarfélagið
Sími:
470 8000
Netfang: xiaoling@hornafjordur.is með efnislínunni „Skráning
rotþróa“
Ef tilkynning berst eftir lok frestsins er engu að síður hægt að hafa samband og við aðstoðum við breytingar.
