Nefndin leggur til að íbúagötur í þéttbýli verði með 30 km. hámarkshraða og stofngötur verði með 50 km. hámarkshraða, á meðfylgjandi mynd má sjá þær götur sem lagt er til að verði með 30 km. hámarkshraða merkt með gulu. Einnig er lagt til að Íbúagötur í Nesjahverfi verði með 30 km. hámarkshraða.

Helstu markmið í nýrri umferðaröryggisáætlun eru eftirfarandi:
Yfirmarkmið verði að gangandi og hjólandi umferð í forgangi í þéttbýlinu. Allar breytingar sem gerðar eru miði að þessu marki.
-
Setja gangandi og hjólandi fólk í forgrunn.
-
Fjarlægja steinagarða á Hafnarbraut.
-
Taka niður umferðarhraða við alla skóla.
-
Færa þjóðveginn austur fyrir byggð, líkt og gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir.
-
30. km hámarkshraði verði við íbúagötur á Höfn og Nesjahverfi.
-
Gera greiða gönguleið frá göngustíg fyrir aftan N1 að Silfurbraut.
-
Breyta umferðargötum við Grunnskóla Hornafjarðar í vistgötu.
-
Tengja gönguleið frá Hlíðartúni við gangbraut við Vesturbraut.
-
Ná niður hraða frá Sundlaug að enda íþróttasvæðis og gera gangbraut og gott aðgengi fyrir gangandi umferð frá Fiskhól.
-
Bæta öryggi vegfarenda um Brautarholt.
-
Gangbraut yfir Hafnarbraut við tjaldstæði.
-
Setja hraðavarnarskilti við Hæðargarð.
-
Bæta veg merkingar almennt í þéttbýli td. stoppmerki við Víkurbraut/Kirkjubraut og endurnýja skilti sem eru upplituð.
-
Skoða þarf gangbrautir á algengum gönguleiðum, við Höfnina, við N1, við Heppuskóla, við ráðhús, við Kirkjubraut. í Hæðargarði.
-
Við færslu þjóðvegs, gera ráð fyrir hringtorgum á Hafnarbraut/Dalbraut, Hafnarbraut/Víkurbraut.
-
Fjarlæga runna og beð sem hindra sýn ökumanna á gatnamótum.
-
Göngu og hjólreiðastígur inn í Nesjahverfi, meðfram þjóðvegi eða út í náttúruna.
-
Aðrein að Nesjahverfis afleggjara.
-
Fjarlægja þrengingu fyrir framan Mánagarð þar sem hún er varasöm.
-
Bílastæðamál á Hafnarsvæði þarf að bæta.
-
Lýsingu á göngustíga milli gatna inni í bænum.
-
Endurskipuleggja nýju gatnamótin við Akureyna.
-
Setja þrengingar eða hraðahindranir með gangbraut í vesturenda Vesturbrautar og minnka þannig hraðakstur um þá leið.
-
Stöðvunarmerki við gatnamótin Víkurbraut, Hafnarbraut.
-
Setja þarf umferðarhlið þar sem keyrt er inn í þéttbýlið á Höfn.
