Fara í efni
18.03.2026

Út úr geymslunni – íbúar hvattir til að hafa áhrif á nýja safnasýningu

Deildu

Safneignin hefur að stórum hluta verið í geymslu frá árinu 2012, en nú stendur til að breyta því með yfirstandandi sýningu í Gömlubúð. Sýningin er sífelldri þróun og er liður í undirbúningi nýrrar grunnsýningar safnsins sem áætlað er að opni í mars 2027.

Sérstaða verkefnisins felst í virkri þátttöku íbúa. Safnið leitar eftir hugmyndum frá íbúum sveitarfélagsins um hvaða muni eigi að taka fram og sýna tímabundið á sýningunni. Þeir eru hvattir til að deila hvaða gripi þeir hafi saknað, hvaða hlutir hafi staðið upp úr í gamla Byggðasafninu og hvað þeir vilja sjá aftur. Ekki síst eru þeir hvattir til að fara í Gömlubúð fari svo að munur sem þau völdu komi út úr geymslunni.

Að sögn safnvarða hafa gestir í gegnum tíðina oft spurt um ákveðna muni, svo sem gullmyntir, seli, skjaldbökur og jafnvel húdd af bílum. Slíkar ábendingar geta nú haft bein áhrif á uppsetningu sýningarinnar.

Búið að er óska eftir tillögum á facebook síðu safnsins
Hlekkur á Facebook

Þar var fyrsta óskin hluti af húddi 007 James Bond bíls sem brunað var um á Jökulsárlóni. Búið er að koma því fyrir í móttöku Gömlubúðar ásamt QR kóða þar sem hægt að að skoða atriðið úr kvikmyndinni “Die Another day” á Youtube.

Unknown-6

Tillögum má skila í gegnum netfangið byggdasafn@hornafjordur.is. Þótt pláss sé takmarkað þar sem um er að ræða einungis aðra hæð Gömlubúðar leggja safnverðir áherslu á að allar hugmyndir skipti máli.

Það er mikið um viðburði í Gömlubúð þessa dagana- tónlist, sýningar og listasmiðjur en opið er þar alla daga vikunnar frá 14-20.

Unknown-3